Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Ástþór Reynir Guðmundsson
Vigdís R. S. Helgadóttir
Guðbjörg Helga Jóhannesdóttir
Gylfi Jens Gylfason
Sigrún Matthea Sigvaldadóttir
Sveinn Gíslason
Páll Guðmundsson
Þórarinn Arnar Sævarsson
Berglind Hólm Birgisdóttir
Þorsteinn Gíslason
Guðrún Lilja Tryggvadóttir
Brynjar Ingólfsson
Guðný Þorsteinsdóttir
Bjarni Blöndal
Þorsteinn Ólafs
Þórdís Björk Davíðsdóttir
Jóhann Kristinn Jóhannesson
Bjarný Björg Arnórsdóttir
Salvör Þóra Davíðsdóttir
Magga Sigríður Gísladóttir
Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 1972
129,8 m²
4 herb.
1 baðherb.
3 svefnh.
Þvottahús
Bílskúr
Útsýni
Sérinngangur
Opið hús: 1. mars 2026
kl. 14:00
til 16:00
Opið hús: Árblik 1, 740 Neskaupstaður. Eignin verður sýnd sunnudaginn 1. mars 2026 milli kl. 14:00 og kl. 16:00.
Lýsing
Bjarni Blöndal löggiltur fasteignasali ([email protected]/s:662-6163) kynnir mjög mikið endurnýjað og fallegt fjögurra herbergja einbýli á einni hæð auk bílskúrs við Árblik 1 á Norðfirði. Frábær staðsetning og geggjað útsýni. Húsið er skráð 108,8fm og bílskúr 21fm, samtals 129,8fm samkv. HMS. Húsið skiptist í anddyri, eldhús, stofu, þrjú svefnherbergi, þvottahús, baðherbergi, geymslu og bílskúr.
Aðalrými:
Anddyri er flísalagt. Stofa og borðstofa mynda bjart og rúmgott opið rými með gluggum til suðurs og vesturs. Útgengt er á stóran sólpall frá stofu með svakalegu útsýni. Eldhús er með góðri innréttingu, nægu skápaplássi, borðplötu frá Brúnás, innbyggðum tækjum og áfastri eyju, helstu tæki hafa verið endurnýjuð á síðustu árum.
Svefnherbergi:
Húsið er með þremur svefnherbergjum, öll rúmgóð með parketi á gólfi. Tvö herbergjanna eru með innbyggðum fataskápum. Innihurðir frá Birgisson með felliþröskuldum.
Bað- og þvottahús:
Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf með nýlegum blöndunartækjum, sturtuklefi, gólfhiti, gluggi. Nýtt vegghengt salerni, flísar og efni til frekari endurbóta getur fylgt með. Þvottahúsið er rúmgott og var tekið algerlega í gegn árið 2023 með nýrri innréttingu og flísum. Auk þess er sér geymsla og fataherbergi sem hægt er að breyta aftur í lítið baðherbergi ef vilji er til.
Innviðir og tæknikerfi:
Mikið hefur verið endurnýjað í húsinu undanfarin ár. Vatnslagnir og hitakútur nýlega endurnýjað, skólplagnir úr plasti í góðu ástandi. Rafmagn hefur verið yfirfarið, nýir rafmagnsofnar settir upp og hluta rafmagnstöflu skipt út. Öll gólfefni, parket og flísar, gluggar og hurðir er endurnýjað. Hluti loftaklæðningar hefur einnig verið endurnýjaður.
Bílskúr:
Bílskúr hefur verið lagfærður að innan og er með nýlegri aksturshurð. Malbikað plan er fyrir framan húsið og bílskúr.
Lóð og utanhúss:
Húsið var einangrað að utan og klætt með báruálsklæðningu árið 2025. Á sama tíma var reistur um 100 fermetra sólpallur. Eftir stendur að ljúka skjólveggjum og girðingu við lóðamörk (mögulegt að timburefni fylgi). Nýjar þakrennur hafa verið settar upp og þakið yfirfarið, Aluzinc á þaki var endurnýjað fyrir nokkrum árum. Steyptir hafa verið staurar fyrir girðingu og viðbótarpall aftan við bílskúr. Nýtt ruslatunnuskýli stendur við viðarklæddan steyptan vegg sem skilur það frá bílskúrnum. Stórt grjótbeð prýðir svæðið .
Endurbætur:
2025 – Klæðning, sólpallur, rennur, fataskápur í barnaherbergi. Þökulögn, staurar fyrir girðingu og pall, loftaplötur að hluta og yfirferð á þaki.
2024 – Endurbætur á eldhúsi, ný borðplata, tæki og innrétting. Ný aðalútidyrahurð og þrír gluggar. Endurnýjun á parketi, innihurðum og rafmagni. Lóð mótuð og drenlögn sett. Ruslatunnuskýli og klæddur veggur byggður við bílastæði.
2023 – Þvottahús endurnýjað og flísalagt ásamt anddyri.
2022 – Nýjar vatnslagnir, hitakútur og blöndunartæki á baðherbergi.
Allir rafmagnsofnar hafa verið endurnýjaðir á undanförnum árum.
Árblik 1 er gott fjölskylduhús sem býður uppá mikla möguleika. Stutt er í góðar gönguleiðir og útivistarsvæði, leikskóla, grunnskóla, verkmenntaskóla, íþróttahús og sjúkrahúsi.
Frábærlega staðsett hús í bænum. Það er einnig svakalegt útsýni frá húsinu bæði úr suðurgluggunum og af palli.
Allar upplýsingar um eignina veitir Bjarni Blöndal löggiltur fasteignasali í síma 662 6163 eða [email protected].
Vegna mikillar eftirspurnar vantar mig allar tegundir eigna á skrá. Hafðu samband og ég mun verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi 0,8%, ( 0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða ) og 1.6% (ef lögaðilar) af heildar fasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar, sjá upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
12. nóv. 2022
29.200.000 kr.
44.000.000 kr.
129.8 m²
338.983 kr.
7. jan. 2008
15.205.000 kr.
18.000.000 kr.
129.8 m²
138.675 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026