Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 2021
55,4 m²
3 herb.
1 baðherb.
2 svefnh.
Lyfta
Opið hús: 7. mars 2026
kl. 12:30
til 13:00
Opið hús: Jöfursbás 11A, 112 Reykjavík, Íbúð merkt: 04 03 03. Eignin verður sýnd laugardaginn 7. mars 2026 milli kl. 12:30 og kl. 13:00.
Lýsing
Eignamiðlun kynnir:
Mjög falleg 55,4 fm 3ja herbergja íbúð á 3. hæð í nýlegu lyftuhúsi við Jöfursbás 11A í Reykjavík. Sér inngangur af svalagangi. Íbúðin skiptist í forstofu, samliggjandi stofu og eldhús, baðherbergi og tvö herbergi. Svalir til vesturs. Sameiginleg bílastæði með sameiginlegum hleðslustöðvum.Nánari uppl. veitir: Magnea Sverrisdóttir lg. fasteignasali s. 861 8511, [email protected]
Nánari lýsing:
Forstofa: Flísalögð forstofa með skáp.
Stofa og eldhús: Samliggjandi stofa og eldhús. Rúmgott og bjart rými. Gólf er parketlagt. Falleg hvít IKEA innrétting er í eldhúsi. Ofn og háfur úr stáli. Pláss fyrir uppþvottavél. Svalir eru út af stofu til vesturs. Sjávarútsýni. Stofurými nýtist mjög vel. Hurð inn í barnaherbergi er hjá eldhúsinu.
Hjónaherbergi: Parketlagt hjónaherbergi með skápum. Rennihurðir eru á herberginu.
Barnaherbergi: Parketlagt barnaherbergi.
Baðherbergi: Hvít innrétting. Upphengt salerni. Walk- in sturta. Gólf er dúklagt. Lögn fyrir þvottavél.
Í sameign er þvottahús með vélum. Einnig er sameiginlegur salur, með eldhúsi og snyrtingu, sem verið er að taka í notkun. Í sér húsi í miðlægum garði er sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.
Við íbúðarbyggðina eru matjurtagarðar í landi Reykjavíkurborgar.
Frábær fyrstu kaup. Fast verð er á íbúðunum samkvæmt þinglýstri kvöð. Forgang að íbúðunum hafa einstaklingar á aldrinum 18-40 ára. Ef tveir eða fleiri einstaklingar sækjast eftir sömu íbúð, þá ganga þeir fyrir sem eru að kaupa sína fyrstu íbúð en að öðru leyti ræður hlutkesti. Byggingaraðili er Þorpið vistfélag.
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
18. jan. 2022
16.450.000 kr.
34.144.000 kr.
55.4 m²
616.318 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026