Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 2002
167,6 m²
2 herb.
Lýsing
Hvaleyrarbraut 33 - Um er að ræða afar glæsilegt atvinnuhúsnæði sem mikið hefur verið lagt í. Í húsnæðinu er einstakt útsýni yfir höfnina og víðar, bilið er skráð 167,6 fm að stærð samkvæmt fmr og er afar smekklegt, arkitektarnir Stefán Örn Stefánsson og Grétar Markússon hjá Argos sáu um innanhússhönnunina. Þeir hönnuðu einnig stigann sem tengir aðalhæðina við milligólfið og var hann síðan smíðaður í Járnsmiðju Óðins. Glerið í bilinu er síðan frá Samverk. Ítalskar ljósar flísar eru á öllu neðra rýminu og þykkur eikarspónn á gólfi efri hæðarinnar. Eldhúsið er frá Habitat og er úr massífri eik. Hillur í fremra rými eru frá Ofnasmiðjunni, blöndunartæki frá Hans Grohe og vaskur frá Ísleifi Jónssyni þá er einnig hleðslustöð við eignina. Gríðarlega skemmtilegt og fjölbreytt húsnæði.
Eignin skiptist í rúmgóðan sal, þaðan er gengið inn í rými sem hefur verið skipt upp í setustofu, borðstofu/fundaraðstöðu og eldhús, skilrúm á milli þessara rýma er fallegt gler. Úr eldhúsinu er síðan útgengt út á svalir með fallegu útsýni yfir höfnina. Salerni er á neðri hæðinni, gengið er upp fallegan stiga á efri hæð bilsins sem er í dag nýtt sem skrifstofa. Þaðan er fallegt útsýni. Um er að ræða vandaða eign á góðum stað í endanum á botnlanga sem getur hentað fyrir ýmislegt t.d skrifstofu, eða lager. Eign sem vert er að skoða.
Nánari upplýsingar veitir:
Stefán Rafn Sigurmannsson s.655-7000 eða [email protected]
Ás fasteignasala er rótgróið fyrirtæki sem hefur veitt alla almenna þjónustu í fasteignaviðskiptum frá árinu 1988.
www.facebook.com/asfasteignasala
www.instagram.com/as_fasteignasala
www.as.is

Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
18. jún. 2007
9.240.000 kr.
27.000.000 kr.
117 m²
230.769 kr.
20. jún. 2006
1.125.000 kr.
100.000.000 kr.
1088.6 m²
91.861 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026