Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Hannes Steindórsson
Bogi Molby Pétursson
Guðrún Antonsdóttir
Heimir Hallgrímsson
Hrafnkell P. H. Pálmason
Viðar Marinósson
Elías Haraldsson
Kristján Þórir Hauksson
Albert Bjarni Úlfarsson
Ragnar Þorsteinsson
Þórey Ólafsdóttir
Andri Freyr Halldórsson
Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 1998
175,8 m²
5 herb.
2 baðherb.
4 svefnh.
Þvottahús
Bílskúr
Sérinngangur
Opið hús: 9. mars 2026
kl. 17:00
til 17:30
Lýsing
LIND fasteignasala og Helga Pálsdóttir löggiltur fasteignasali kynnir virkilega fallegt og mikið endurnýjað 175,8 m2 endaraðhús á þremur hæðum þar af 26,1 m2 bílskúr. Einstakt útsýni á mjög eftirsóttum stað í suðurhlíðum Kópavogs. Suðurpallur með heitum potti. Bílastæði fyrir 3 bíla með snjóbræðslu ásamt hleðslustöð. Miklar endurbætur hafa verið gerðar á eigninni.
* 2016 Miðhæð að fullu endurnýjuð, flísar á gólf með gólfhita. Alrými með eldhúsi og stofu, gestasalerni og forstofa.
* 2018 Heitur pottur og pallur.
* 2022 Þvottahús endurnýjað, flísalagt gólf m. gólfhita. Komið fyrir sturtuklefa. Endurnýjaðar vatnslagnir.
* 2024 Baðherbergi endurnýjað á neðri hæð, flísalagt í hólf og gólf, innbyggð sturtutæki, "walk-in" sturta, gólfhiti. Endurnýjaðar vatnslagnir.
* 2025 Rafmagnstafla uppfærð í 3ja fasa rafmagn og komið fyrir hleðslustöð.
* 2025 Þök endurnýjuð á allri raðhúsalengjunni og settir nýir þakglugga.
Nánari lýsing
Miðhæð
Forstofan er flísalögð með innbyggðum fataskápum. Góður spegill á vegg.
Gestasnyrting er á vinstri hönd, flísalagt gólf og veggur. HTH innrétting og stór spegill á vegg, upphengt salerni og opnanlegur gluggi.
Eldhús er með fallegri HTH innréttingu með ljúflokunum á skúffum. Rúmgóður tækjaskápur, innbyggður ísskápur og frystir, innbyggð uppþvottavél. Borðplata og eyja úr kvarts frá S Helgasyni, mjög góð vinnuaðstaða og sæti við eyju fyrir fjóra. Gott innfellt span helluborð með viftu yfir. Flísar á gólfi.
Stofa er björt og rúmgóð með útgengi á góðar suðursvalir. Glæsilegt útsýni. Flísar á gólfi.
Samskonar flísar og gólfhiti á allri miðhæðinni.
Rishæð Frá miðrými er gengið upp í ris um parketlagðan stiga. Þar er góð aðstaða sem meðal annars rúmar tvíbreitt rúm, sófasett og vinnuaðstöðu. Parket á gólfi og nýr Velux þakgluggi með tvöfaldri Velux gardínu. Geymsla undir súð.
Neðri hæð
Af miðhæð er gengið niður á neðri hæð um parketlagðan stiga.
Sjónvarpshol með parketi á gólfi.
Hjónaherbergi með parketi á gólfi og góðum fataskápum.
Tvö barnaherbergi með parketi á gólfi og fataskápum.
Baðherbergi með flísalögðu gólfi og veggjum, innréttingu frá HTH og speglaskáp. Walk-in sturta með innbyggðum sturtutækjum, upphengt salerni og handklæðaofn, opnanlegur gluggi. Hiti í gólfi.
Þvottahús með flísalögðu gólfi, góðum innréttingum þar sem þvottavél og þurrkara eru í vinnuhæð, skolvaskur. Flísalagður sturtuklefi. Hiti í gólfi. Útgengi út á timburverönd með skjólveggjum og heitum potti.
Geymsla undir stiga með parketi á gólfi.
Sérstæður bílskúr með heitu og köldu vatni, rafmagni og rafdrifnum opnara.
Gnitaheiðin er í fallegu og grónu hverfi þar sem stutt er í skóla, leikskóla sem og fjölbreytta verslun og þjónustu. Stutt er til allra átta og samgönguleiðir mjög góðar, fyrir gangandi, akandi sem og hjólandi. Einnig er stutt í ýmiss konar afþreyingu og fjölmargar leiðir til útivistar. Allar upplýsingar um eignina veitr Helga Pálsdóttir fasteignasali í síma 822 2123 eða [email protected]

Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
12. okt. 2015
44.150.000 kr.
50.300.000 kr.
175.8 m²
286.121 kr.
23. apr. 2014
40.450.000 kr.
47.700.000 kr.
175.8 m²
271.331 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026