Opið hús: Grímsgata 8, 210 Garðabær, Íbúð merkt: 01 02 03. Eignin verður sýnd laugardaginn 7. mars 2026 milli kl. 12:00 og kl. 12:30.
Lýsing
Eignin er laus strax. Opið hús um helgina 7. mars 2026 kl. 12:00
Íbúð 203 er 3 herbergja íbúð á 2.hæð í lyftuhúsi. Íbúðin er með tveimur svefnherbergjum, eldhúsi, baðherbergi, stofu og geymslu á jarðhæð. Sólpallur sem snýr í suður. Birt stærð eignar er 88,9 fm og þar af er 4 fm geymsla. Íbúðin er með harðparketi og á votrýmum eru flísar frá framleiðandanum NAXB, af gerðinni Pro fluid í litnum Ivory, frá Álfaborg, stærð 60x60 cm. Í eldhúsi fylgja vönduð eldhústæki frá Siemens. Innbyggður kæli-/frystiskápur og innbyggð uppþvottavél fylgir eldhúsi. Í eldhúsi er vönduð Nobilia innrétting frá GKS trésmiðju, borðplata úr kvartssteini frá Silestone. Loftskiptikerfi. Myndavéladyrasími. Allar innréttingar og skápar eru af vandaðri gerð frá GKS trésmiðju.
Nánari lýsing eigna er hér að neðan: Grímsgata 8 er fimm hæða fjölbýlishús með einu stiga- og lyftuhúsi. Í húsinu eru 19 íbúðir af fjölbreyttum stærðum og gerðum. Aðalinngangur hússins er á jarðhæð og hafa allar íbúðir sérinngang af svalagangi. Á jarðhæð er ein íbúð sem hefur sérinngang og sérafnotareit í suðlægar áttir. Sérgeymslur, vagna- og hjólageymsla, tæknirými og sorpgeymsla ásamt beinu aðgengi að bílageymslu með níu merktum bílastæðum eru á jarðhæð.
Eldhúsinnréttingar eru frá GKS trésmiðju. Eldhústæki eru frá Siemens. Baðherbergi eru flísalöggð með flísum úr Álfaborg. Á baðherbergi er handlaug, innrétting, upphengt salerni, handklæðaofn, og sturta með
Sameign er fullbúin með lyftu. Lóð er fullfrágengin, hellulögð ásamt gróðri og þökulögn skv. teikningum.
Bókið skoðun: Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515 - [email protected] löggiltur fasteignasali.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.