Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Lilja Valþórsdóttir
Hákon Ólafur Hákonarson
Vista
raðhús

Stapavellir 5

260 Reykjanesbær

77.900.000 kr.

631.792 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2295977

Fasteignamat

77.850.000 kr.

Brunabótamat

64.790.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 2007
svg
123,3 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr

Lýsing

PRODOMO fasteignasala kynnir gott þriggja herbergja raðhús að Stapavöllum 5 í Njarðvík.
Frábær staðsetning þar sem stutt er í verslun og flesta þjónustu.
Eignin er laus til afhendingar við kaupsamning.

Nánari lýsing:
Forstofa
með flísum á gólfi og fataskáp.
Eldhús, stofa og borðstofa eru í opnu rými. Þar eru flísar á gólfi. Eldhúsinnrétting með innbyggðum ísskáp og uppþvottavél, bakarofn í vinnuhæð. Frá rýminu er útgengt á verönd með steyptum skjólveggjum.
Hjónaherbergi með parketi á gólfi, þar eru góðir skápar.
Herbergi með flísum á gólfi.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum. Góð innrétting, upphengt salerni og sturta. Frá baðherbergi er útgengt.
Þvottahús með flísum á gólfi, góð innrétting þar sem gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. 
Geymsla með flísum á gólfi.
Bílskúr með flísum á gólfi. Þar er skolvaskur. 
Lóð er frágengin, bílaplan og stétt er hellulögð, þar er snjóbræðsla.

Allar nánari upplýsingar veita Lilja Valþórsdóttir Löggiltur fasteignasali í síma 420-4030 / 860-6886 eða [email protected] og Hákon Ó. Hákonarson Löggiltur fasteignasali í síma 420-4030 / 899-1298 eða [email protected]

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. PRODOMO fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlitið er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
* Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga ( 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut ) og 1,6% fyrir lögaðila.
* Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
* Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
* Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.

img
Lilja Valþórsdóttir
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
PRODOMO fasteignasala
Hafnargötu 15, 230 Keflavík
PRODOMO fasteignasala

PRODOMO fasteignasala

Hafnargötu 15, 230 Keflavík
phone
img

Lilja Valþórsdóttir

Hafnargötu 15, 230 Keflavík
PRODOMO fasteignasala

PRODOMO fasteignasala

Hafnargötu 15, 230 Keflavík
phone

Lilja Valþórsdóttir

Hafnargötu 15, 230 Keflavík