Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Víðir Arnar Kristjánsson
Árni Helgason
Vilborg Gunnarsdóttir
Ingunn Björg Sigurjónsdóttir
Vera Sigurðardóttir
Sjöfn Hilmarsdóttir
Vala Georgsdóttir
Vista
einbýlishús

Heiðargerði 3

108 Reykjavík

149.900.000 kr.

726.612 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2033455

Fasteignamat

119.000.000 kr.

Brunabótamat

89.090.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1958
svg
206,3 m²
svg
6 herb.
svg
3 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur
Opið hús: 8. mars 2026 kl. 14:00 til 14:45

Opið hús: Heiðargerði 3, 108 Reykjavík. Eignin verður sýnd sunnudaginn 8. mars 2026 milli kl. 14:00 og kl. 14:45. Vinsamlegast bókið skoðun hjá Sölva sem sýnir eignina á netfang [email protected] eða í s. 618-0064

Lýsing

Domusnova og Sölvi Sævarsson lgf, kynna í sölu:  Glæsilegt töluvert endurnýjað einbýlishús með þremur svefnherbergjum ásamt aukaíbúð með sérinngangi og bílskúr á góðum stað við Heiðargerði 3 í 108 Rvk.
 

Eignin er alls skráð 206,3 m² þar ef bílskúr 21 m² skv. Þjóðskrá Íslands.  
Fasteignamat 2026 er 119.000.000.- kr.  Byggingarár er 1958. Bílskúr er byggður 1964.


--- Seljendur geta afhent eignina fljótlega að loknum kaupsamningi ---

Húsið er steypt á þremur hæðum ásamt steyptum sérstæðum bílskúr sem tengist húsinu. Eignin er skráð einbýlishús. Aaleignin er á tveimur hæðum og aukaíbúð með sérinngangi í kjallara. Hjá aðalinnganginum eru 2-3 bílastæði og einnig er stæði fyrir framan bílskúrinn.

Aðaleignin skiptist í: Forstofu, stofu, borðstofu, eldhús, tvö svefnherbergi og sjónvarpsherbergi sem getur verið barnaherbergi, snyrtingu, baðherbergi og þvottaherbergi.
Aukaibúð: skiptist í anddyri, þvottaherbergi, sér sturturými, salerni, eldhús, stofu og svefnherbergi. Auðvelt er að opna aftur á milli aðaleignar og aukaíbúðar ef þörf er á. Aflokuð verönd með skjólveggjum og heitum potti er á milli húss og bílskúrs.

Allar nánari upplýsingar veitir: Sölvi Sævarsson löggiltur fasteignasali í s. 618-0064 eða [email protected] 

Nánari lýsing:
Aðalhæð: 1.hæð
Forstofa - Komið er inn í forstofu með flísum á gólfi, fallegur gluggi í forstofu sem gefur góða birtu inn í rýmið.
Þvottaherbergi - Inn af forstofu er búið að útbúa sér þvottahús á hægri hönd. Góð innrétting með rými fyrir þvottavél og þurkara í góðri vinnuhæð og gott skápapláss, skolvaskur og opnanlegur gluggi.
Snyrting - Við hlið þvottahúss á gangi er snyrting með upphengdu innbyggðu salerni á vegg og innréttingu með handlaug.
Eldhús - Eldhúsið er sérlega rúmgott og var að mestu endurnýjað 2023 settar nýjar skáphurðar og borðplata á innréttingu. Gler á vegg milli efri og neðri skápa. Mjög gott skápapláss og sérlega gott vinnupláss er í eldhúsinu. Harðparket er á gólfi. 
Borðstofa - Á milli setustofu og eldhúss er björt og falleg borðstofa í sérrými. Harðparket á gólfi og gluggar á tvær hliðar.
Stofa - Stofan er í rými í framhaldi af borðstofu. Harðparket á gólfi. Útgengt er út í garð sem leiðir niður á skjólgóða verönd með sólpalli, heitum potti og skjólveggjum.

Efri hæð: 2.hæð 
Gengið er upp steyptan stiga með fallegu teppi á þrepum og stórum glugga sem hleypir fallegri birtu inn í stigarýmið.
Sjónvarpsherbergi - Rúmgott 14,5 m² Sem áður var hjónaherbergi með harðparketi á gólfi. Hurð er út á suðvestursvalir.
Hjónaherbergi - Rúmgott 13,5 m² með fataskáp og harðparketi á gólfi.
Barnaherbergi - Með fataskáp og harðparketi á gólfi.
Baðherbergi - Baðherbergið var allt endurnýjað árið 2022 og með flísum á gólfi og á veggjum og walk inn sturtu með glerþili við. Innrétting erneinnig ný frá 2022 með vaskborði ofan á innréttingu. Salerni er innfellt og upphengt á vegg. Opnanlegur gluggi á baði.
Geymsluloft: Geymsluloft er yfir allri hæðinni. Þetta er svokallað kalt rými. Ragmagn og ljós er í rýminu og lítill gluggi.

Aukaíbúð í kjallara:
Anddyri - Gengið er inn um sérinngang inn á forstofugang sem er með dúkflísum á gólfi.
Eldhús og stofa - Saman í opnu rými er stofa, borðkrókur og eldhúsinnrétting. Gólf er málað.  
Svefnherbergi - Mjög stórt og rúmgott herbergi með máluðu gólfi.
Þvottahús og sturtuaðstaða - Búið er að skipta upp þvottaherberginu upp og útbúa bæði aðstöðu fyrir þvottavélina og einnig sérrými fyrir sturtuaðstöðu. gólf eru máluð
Baðherbergi - Salernið er í sérrými með handlaug og máluðu gólfi.

Íbúðin er leigð með húsgögnum, raftækjum s.s. sjónvarpi, ísskáp, þvottavél, kaffikönnu, brauðrist. (fylgir með í kaupum)
Leigendurnir eru gott fólk og þægilegir í samskiptum. Þau hafa áhuga á áframhaldandi leigu. Leigusamningi lýkur í lok júní.

Bílskúr: Við hlið hússins er 21 m² bílskúr ásamt bílastæði fyrir fram bílskúr. Þak á bílskúr var endurbætt +arið 2023 og skipt um sperrur og klæðningu og settur þakdúkur, lektur og þakjárn. Þak er einangrað og góðir gluggar, hiti, rafmagn og heitt og kalt vatn. Hleðslustöð er utan á bílskúr.

Upplýsingar frá eigendum með framkvæmdir síðustu ára:
- Febrúar 2022. Skipt um parket og allir innveggir og loft máluð. Veggur og hurð á gangi á efri hæð fjarlægt. 
- Mars 2022. Innihurðir endurnýjaðar á efri hæð.
- Nóvember 2022. Þegar farið var í framkvæmdir á baðherbergi, kom í ljós lekið hafði meðfram baðkari svo fjarlægja þurfti    múr og einangrun af tvemur veggjum. Einangrað var og pússað eftir að búið var að þurrka rýmið. Baðherbergi flísalagt       og komið fyrir sturt í stað baðkars og skipt um miðstöðvarofn.
- 2022 Gólf á gestasnyrtingu og þvottahúsi flísalögð. 
- Mars 2023. Nýr fataskápur settur í hjónaherbergi.
- Nóvember 2023. Gerefti á gluggum í eldhúsi fjarlægð og í staðinn settir hornlistar og spartlað.
- Nóvember 2023, Eldhúsinnréttingu breytt og skipt um framhliðar og borðplötu og skipt um ofn, helluborð og háf.
- Gler sett fyrir ofan eldhúsbekk.
- September 2024. Íbúð í kjallara máluð. Október 2025. Skipt um teppi á stiga og gangi.

Framkvæmdir utanhús á árunum 2024-2025
- 2022  Hleðslustöð sett á bílskúr
- Sumar 2023. Múrviðgerðir að utan og málningarvinna. Geymsluskúr settur í garð
- Maí 2024. Tré fjarlægt og pallur smíðaður í garð.
- Júlí 2024. Þak á bílskúr rifið og endurbætt, skipt um sperrur og klæðningu og settur þakdúkur, lektur og þakjárn.
  Þak einangrað og plastað.
- Júní 2025. Múrviðgerðir og málning að utan klárað.
- Júlí 2025. Sett nýtt handriðaplast á útihandrið.
- Desember 2025. Hitaveitupottur með hitastýringu settur í garð.

Nánasta umhverfi: Stutt í skóla og leikskóla og verslun í Austurver og þjónustu í Skeifunni.

Nánari upplýsingar veitir:
Sölvi Sævarsson löggiltur fasteignasali. í síma 618-0064 eða [email protected] 
 – eða skrifstofa / s.527-1717 / [email protected] 


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:  
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila, (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt kr. 50.000 - 75.000. Sjá nánar á heimsíðum lánastofnanna.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu kr. 67.900 kr.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða þá greiðir kaupandi skipulagsgjald þegar það verður lagt á.
 

 

Domusnova fasteignasala

Domusnova fasteignasala

Hlíðasmári 4, 2. hæð, 201 Kópavogur
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
28. des. 2021
72.600.000 kr.
98.000.000 kr.
206.3 m²
475.036 kr.
18. júl. 2019
67.950.000 kr.
75.500.000 kr.
206.3 m²
365.972 kr.
31. maí. 2016
43.050.000 kr.
63.000.000 kr.
206.3 m²
305.381 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Domusnova fasteignasala

Domusnova fasteignasala

Hlíðasmári 4, 2. hæð, 201 Kópavogur
phone