Lýsing
Miklaborg kynnir: Falleg og vel skipulögð 3ja herbergja íbúð á 3. hæð í Rimahverfinu í Grafarvogi með útsýni í átt að Faxaflóa.
Skv. skráningu HMS er eignin 98,2 fm, íbúð 93,5 fm og geymsla 5 fm.
Eignin er mjög vel skipulögð og telur andyri, svefnherbergi, mjög rúmgóða stofu/alrými, eldhús, hjónaherbergi, baðherbergi og þvottaherbergi. Eignin er mjög vel staðsett innst í rólegu íbúðarhverfi þaðan sem örstutt er í leik- og grunnskóla ásamt því að vera í gögnufjarlægð frá Spönginni, verslunar og þjónustukjarni í Grafarvogi.
Nánari upplýsingar veitir Ingimundur Ingimundarson lögg. fasteignasali í síma 867-4540 eða [email protected]
Andyri rúmgott með flísum á gólfi og góðum fataskáp.
Alrými (stofa/borðstofa) mjög rúmgott sem er opið inn í eldhús. Stofan með glugga í vestur með fallegu útsýni, einnig er þaðan gengið út á rúmgóðar svalir. Í alrými er parket á gólfi.
Eldhús með flísum á gólfi, innrétting með efri og neðri skápum í viðarlit. Ofn í vinnuhæð. Uppþvottavél.
Svefnherbergi með fataskáp. Parket á gólfi.
Hjónaherbergi með stórum fataskáp. Parket á gólfi.
Baðherbergi flísalagt með fallegum ljósum flísum, upphengt salerni, baðkar með sturtu.
Þvottaherbergi með flísum á gólfi.
Geymsla á jarðhæð inn af hjóla og vagnageymslu.
Björt og falleg eign í grónu og rólegu fjölskylduhverfi í Grafarvoginum.
Nánari upplýsingar veitir Ingimundur Ingimundarson lögg. fasteignasali í síma 867-4540 eða [email protected]