Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Finnbogi Hilmarsson
Gunnlaugur A. Björnsson
Brynjólfur Snorrason
Ragnar Þorgeirsson
Sigríður Lind Eyglóardóttir
Ásdís Írena Sigurðardóttir
Elsa Björg Þórólfsdóttir
Upplýsingar
svg
Byggt 1989
svg
186,8 m²
svg
6 herb.
svg
2 baðherb.
svg
5 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sérinngangur
Opið hús: 8. mars 2026 kl. 13:30 til 14:00

Opið hús: Fagrihjalli 100, 200 Kópavogur. Eignin verður sýnd sunnudaginn 8. mars 2026 milli kl. 13:30 og kl. 14:00.

Lýsing

Heimili fasteignasala kynnir til sölu fallegt parhús innst í botnlanga að Fagrahjalla 100 í 200 Kópavogi. Eignin er skráð 186,8 m2 að stærð, þar af íbúðarrými 161,3 m2 og bílskúr 25,5 m2, og samanstendur af anddyri, eldhúsi, stofu, allt að fimm svefnherbergjum, þvottahúsi, snyrtingu og baðherbergi auk bílskúrs sem hægt er að nýta sem auka íbúð. Fyrir framan eign er suður verönd og frá stofu er útgengt á skjólgóðar þaksvalir.  Falleg eign á kyrrlátum stað innst í botnlanga í suðurhlíðum Kópavogs. 

Nánari upplýsingar veitir Brynjólfur Snorrason, lgfs., [email protected]

Nánari lýsing.
Anddyri:
Opið og bjart með stórum fataskápum. Á gólfi eru flísar 60x60 flísar frá Birgisson. 
Eldhús: Falleg hvít innrétting [Schmidt] frá Parka, mikið skápapláss, góð vinnuaðstaða, nýlegur ofn í vinnuhæð og nýlegt helluborð. Á gólfi eru 60x60 flísar frá Birgisson og frá eldhúsi er útgengt á skjólgóða suður verönd. 
Snyrting: Sérsmíðuð innrétting, góðar hirslur, vegghengt wc, flísar á gólfi á veggjum utan þess sem geymir innréttinguna.
Þvottahús: Hvít innrétting með aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara, ágæt vinnuaðstaða. Á gólfi eru flísar. 
Herbergi: Gluggar til norðurs, rennihurð sem nær upp í loft. Á gólfi eru flísar.  
Herbergi:
Parket á gólfi og gluggar á tvo vegu. 
Stofa: Rúmgóð og björt með aukinni lofthæð, innfelldri lýsingu, parketi á gólfi, sólskála og tveimur útgönguleiðum á skjólgóða þakverönd eignar. 
Hjónaherbergi: Rúmgott með tveimur stórum fataskápum, gluggum á tvo vegu og parketi á gólfi.  
Herbergi: Parket á gólfi og stór gluggi með opnanlegu fagi. 
Baðherbergi: Innrétting og tæki frá Tengi, vegghengt wc, baðkar og sér sturtuklefi. Á gólfi og á veggjum eru flísar. 
Risherbergi: Birt stærð er 15,6 m2 en er ca. 30m2 að gólffleti og býður upp á margvíslega möguleika. Á gólfi er parket og inn af herbergi er geymsla. 
Bílskúr: Heitt og kalt vatn, rafmagn og góðir gluggar. Er í dag nýttur sem vinnustofa og allar lagnir til staðar til að útbúa auka íbúð. Fyrir framan bílskúr er bílastæði eignar, sérsmíðuð sorpgeymsla auk útigeymslu fyrir hjól, vagna og/eða garðáhöld.

Að framanverðu er einnig nýleg suður verönd, ofan á bílskúr eru afgirtar þaksvalir, sem gengið er út á frá stofu og bjóða upp á fallegt útsýni til fjalla og yfir dalinn, og loks er stór nýleg afgirt timburverönd á bak við hús.

Skv. seljenda var járn á þaki, rennur og niðurföll endurnýjað sumarið 2025 auk þess sem skipt hefur verið um flest gler í gluggum húseignarinnar.

Fallegt og vel skipulagt fjölskylduhús með mikla möguleika á frábærum stað í suðurhlíðum Kópavogs. 

Nánari upplýsingar veitir Brynjólfur Snorrason, lgfs., [email protected]
 


Heimili fasteignasala - á traustum grunni frá 2002.  Vegna mikillar eftirspurnar á markaði vantar okkur fleiri eignir á söluskrá. Hafið samband í síma 530-6500 eða sendið okkur tölvupóst á [email protected] og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.
Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.

img
Brynjólfur Snorrason
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Heimili fasteignasala
Grensásvegur 3, 2. hæð, 108 Reykjavík
Heimili fasteignasala

Heimili fasteignasala

Grensásvegur 3, 2. hæð, 108 Reykjavík
phone
img

Brynjólfur Snorrason

Grensásvegur 3, 2. hæð, 108 Reykjavík
Heimili fasteignasala

Heimili fasteignasala

Grensásvegur 3, 2. hæð, 108 Reykjavík
phone

Brynjólfur Snorrason

Grensásvegur 3, 2. hæð, 108 Reykjavík