Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sigurður Samúelsson
Andri Sigurðsson
Sveinn Eyland
Ingibjörg Agnes Jónsdóttir
Guðrún Diljá Lúðvíksdóttir
Monika Hjálmtýsdóttir
Júlíus Jóhannsson
Freyja Rúnarsdóttir
Jón Óskar Karlsson
Davíð Matthíasson
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1989
svg
364,8 m²
svg
9 herb.
svg
3 baðherb.
svg
5 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Útsýni

Lýsing

LANDMARK kynnir: Einstakt 364,8 fm einbýlishús með aukinni lofthæð, arinstofu og útsýni í rólegri botngötu á eftirsóttum stað á Arnarnesinu í Garðabæ. Sauna er í húsinu og heitur pottur á stórri afgirtri timburverönd. Leiktæki í grónum garði. Bílaplan er hellulagt með snjóbræðslu og hleðslustöð. Bílskúr er með rafdrifnum hurðaopnara og gönguhurð. Þrjú einkastæði.

Hluta hússins hefur verið breytt í aukaíbúð (um 50 fm) með sérinngangi og er hún í útleigu. (Þinglýstur leigusamningur kr. 245.000). 

Árið 2022 var parket pússað og lakkað. Húsið málað að innan. Eldhúsinnrétting sprautulökkuð hvít og nýjar höldur. Innihurðir og dyrakarmar lakkaðar hvítir og nýjir hurðarhúnar.

**Seljendur skoða skipti á minni eign í Garðabæ.

Nánari lýsing:

Aðalhæð:
Forstofa flísalögð með stórum og rúmgóðum fataskápum.
Auka forstofa  er vestanmegin, gengið inn af timburverönd, tveir inngangar, flísar á gólfi.
Forstofuherbergi er rúmgott með parketi á gólfi og gólfsíðum gluggum.  
Gestasalerni er flísalagt og með innréttingu.
Eldhúsið er með stórri sprautulakkaðri innréttingu með steini á borðum og flísum á gólfi. Nýlegt spanhelluborð. Tengt fyrir uppþvottavél. Barborð er einnig í eldhúsi.
Borðstofa og stofa eru í sama rými og eldhús en með parketi á gólfi og mikilli lofthæð með hljóðdempandi plötum í lofti.  Útgengt er á skjólsæla timburverönd sem snýr í suðvestur/vestur.

Efri pallur:
Parketlagt hol sem nýtist sem sjónvarpsstofa í dag.  
Herbergi með parketi á gólfi og gólfsíðum gluggum. Útsýni til norðurs.
Hjónaherbergi er ,,en-suite“, rúmgott með parketi á gólfi og gólfsíðum gluggum. Fallegt útsýni til norðurs. Fataherbergi er inn af hjónaherbergi ásamt rúmgóðu baðherbergi sem er flísalagt í hólf og gólf, með sturtuklefa, baðkari og stórri innréttingu.
Arinstofa/sólskáli (15 fm) með flísum á gólfi, stórum gluggum og arni. Sjávarútsýni til vesturs og norðurs. Mjög skemmtileg setustofa sem býður upp á einstaka stemningu í bland við stórbrotið útsýni.

Neðri pallur/jarðhæð:
Herbergi er rúmgott með parketi á gólfi og tveimur stórum gluggum.
Þvottahús er stórt, með mjög góðri loftræstingu, nýlegri sturtu og skápum. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Tengi fyrir vask. Stórt geymslurými með skertri lofthæð er inn af þvottahúsi.  
Saunaklefi er á hæðinni.

Aukaíbúð (sérinngangur):
Forstofa með innbyggðum fataskáp, flísar á gólfi.
Stofa og eldhús í björtu og opnu rými með nýlegri hvítri innréttingu, parket á gólfi.
Svefnherbergi er bæði bjart og rúmgott, parket á gólfi.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með sturtuklefa og innréttingu. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara. 
Sérstæði fylgir íbúðinni.

Skipting eignar skv. Þjóðskrá Íslands:  Íbúðarrými 341,3 fm og bílskúr 23,5 fm

Nánari upplýsingar veitir Sigurður Samúelsson Lgf í síma 896-2312 eða [email protected]
--------------------------------------------------------------------



 

Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.

Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 2.700 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustusýslugjald: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.

Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat

img
Sigurður Samúelsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
LANDMARK fasteignamiðlun
Hlíðasmári 2, 201 Kópavogur
LANDMARK fasteignamiðlun

LANDMARK fasteignamiðlun

Hlíðasmári 2, 201 Kópavogur
phone
img

Sigurður Samúelsson

Hlíðasmári 2, 201 Kópavogur
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
7. jan. 2022
120.650.000 kr.
172.000.000 kr.
364.8 m²
471.491 kr.
27. ágú. 2014
85.100.000 kr.
77.000.000 kr.
364.8 m²
211.075 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
LANDMARK fasteignamiðlun

LANDMARK fasteignamiðlun

Hlíðasmári 2, 201 Kópavogur
phone

Sigurður Samúelsson

Hlíðasmári 2, 201 Kópavogur