Opið hús: Vallarhús 11, 112 Reykjavík, Íbúð merkt: 01 02 03. Eignin verður sýnd þriðjudaginn 10. mars 2026 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.
Lýsing
Gildandi fasteignamat 2026 er 83.400.000 kr
Smelltu hér til að fá söluyfirlit
Fjölskylduvæn íbúð með sérinngangi á 2. hæð. Íbúðin skiptist í stofu og borðstofu, eldhús, gestasnyrtingu og þvottahús á neðri hæðinni. Á efri hæðinni eru þrjú svefnherbergi ásamt mjög rúmgóðu baðherbergi, með háalofti/geymslu sem hægt er að útbúa aukaherbergi.
Nánari lýsing,
Neðri hæð
Forstofa/Anddyri með ofn og flísum á gólfi. Frá anddyri er gengið inn í hol.
Þvottahús, gengið úr forstofu, með opnanlegum glugga, með hillum, ofni og dúk á gólfi
Hol, með fatahengi, fallegur viðarstigi er upp á efri hæð og dúkur á gólfi
Eldhús er með upprunalegum hvítum og viðarlituðum innréttingum. Borðkrókur og dúkur á gólfi
Gestasnyrting er í holinu með dúk á gólfi
Stofa og borðstofa, búið er að setja vegg milli stofu og stigans. Gengið frá stofu út á rúmgóðar svalir, sem voru endurnýjaðar og stækkaðar fyrir nokkrum árum. Dúkur á gólfi
Efri hæð
Hjónaherbergi er rúmgott með góðum skápum, aðeins undir súð, með dúk á gólfi
Herbergi I er með fataskáp, aðeins undir súð og dúk á gólfi.
Herbergi II er með fataskáp, aðeins undir súð og dúk á gólfi
Baðherbergi er rúmgott, aðeins undir súð með baðkari og nýlegum sturtuklefa. Innrétting með vaski. Flísar á gólfi og hluta til á veggjum
Stigapallur er teppalagður og uppgengt er frá honum uppí háaloft
Geymsla/háaloft gengið frá stigapalli, með útdregnum stiga. Er rúmgott með opnanlegum þakglugga og ofni, sem gefur möguleika á að gera auka herbergi.
Gott hús og vel skipulögð eign á góðum stað í Grafarvogi þar sem mjög stutt er í alla helstu þjónustu, leikskóla, skóla, sundlaug, íþróttamiðstöð, verslun ofl. Þetta er íbúð á annarri og þriðju hæð í góðu fjölbýli með sérinngangi. Íbúðin er að mestu í upprunalegu ástandi. Sturta í baðherbergi var tekin í gegn 2023, hitastillingar og inntök á ofnum endurnýjað 2023.
Eitt merkt bílastæði og gestastæði fylgir eigninni.
Nánari upplýsingar veitir Elísabet Guðmundsdóttir aðstoðarmaður fasteignasala, í síma 822-4848, [email protected] og Kristján Baldursson löggiltur fasteignasali í síma 8673040
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.