Opið hús: Flyðrugrandi 4, 107 Reykjavík, Íbúð merkt: 01 03 05. Eignin verður sýnd miðvikudaginn 11. mars 2026 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.
Lýsing
Nánari lýsing:
Anddyri: Komið er inn í anddyri/hol með nýlegu parketi og fataskáp.
Stofa/ borðstofa: björt og rúmgott rými með nýlegu parketi, gengið út á stórar suðvestur svalir með fallegu útsýni að KR svæðinu.
Eldhús: er opið við stofuna, ágæt viðarinnrétting og nýlegt parket á gólfi.
Svefnherbergi: rúmgott herbergi með góðu skápaplássi, nýlegt parket á gólfi.
Vinnurými: framan við svefnherbergi er ágætt rými sem í dag er nýtt sem vinnurými.
Baðherbergi: með flísum á gólfi og á veggjum, baðkar, nýlegur vaskur, salerni og blöndunartæki.
þvottahús er á hæðinni, sameiginlegt sem fimm íbúðir deila, sameiginleg tæki og sérskápur fyrir hverja íbúð.
Sérgeymsla íbúðar er í sameign í kjallara ásamt hjóla- og vagnageymslu. Á þaki hússins er gufubaðsklefi og sturtuaðstaða.
Húsið var múrviðgert og málað að utanverðu fyrir fáeinum árum (framkvæmdum lauk 2017) og gluggar/gler endurnýjaðir þar sem þörf var á 2018. Einnig voru svalir flotaðar og málaðar. EFLA verkfræðistofa sá um eftirlit framkvæmda. Búið er að leggja tengi fyrir rafmagnsbíla fyrir framan og aftan húsið. Þótt íbúðin sé skráð á 3ju hæð er aðeins gengið upp eina hæð að framanverðu inn í íbúðina.
Íbúðin er frábærlega staðsett í vesturbænum, örstutt frá íþróttasvæði KR við Frostaskjól, auk þess sem leik- og grunnskólar, Háskóli Íslands og fjölbreytt þjónusta er í nágrenninu.
Nánari upplýsingar um eignina veitir Sigríður Lind Eyglóardóttir löggiltur fasteignasali [email protected] / 8994703
Heimili fasteignasala - á traustum grunni frá 2002. Vegna mikillar eftirspurnar á markaði vantar okkur fleiri eignir á söluskrá. Hafið samband í síma 530-6500 eða sendið okkur tölvupóst á [email protected] og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.
Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.