Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Hafdís Rafnsdóttir
Dórothea E. Jóhannsdóttir
Sigurður Gunnlaugsson
Jón Gunnar Gíslason
Hafliði Halldórsson
Aðalsteinn Bjarnason
Margrét Rós Einarsdóttir
Guðný Ösp Ragnarsdóttir
Elka Guðmundsdóttir
Vista
svg

128

svg

69  Skoðendur

svg

Skráð  6. mar. 2026

fjölbýlishús

Eyravegur 50

800 Selfoss

59.500.000 kr.

529.359 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2282131

Fasteignamat

62.300.000 kr.

Brunabótamat

63.850.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2006
svg
112,4 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús

Lýsing

Elka Guðmundsdóttir lgf., s. 863-8813 og Fasteignasalan TORG kynna fallega og bjarta 4ra herbergja endaíbúð á þriðju hæð í lyftuhúsi við Eyraveg 50, Selfossi.
**  Bókið einkaskoðun með að senda póst á netfangið [email protected] **
Íbúðin er skráð samkvæmt FMR 112,4 m², þar af geymsla, skráð 6,5 m².
Eignin skiptist í eldhús, borðstofu og stofu í opnu rými, þrjú rúmgóð svefnherbergi, baðherbergi og sér þvottahús innan íbúðarinnar.  
Nánari upplýsingar veitir Elka Guðmundsdóttir Fasteignasali, í síma 863-8813, tölvupóstur [email protected].

NÁNARI LÝSING
Gengið er inn í flísalagða forstofu um sérinngang af svölum.
Eldhús er með upprunalegri innréttingu sem hefur verið filmuð. Góð vinnuaðstaða og tæki, opið við stofurými.
Stofa / borðstofa er björt og rúmgóð í opnu rými með eldhúsi, með gluggum á tvo vegu sem tryggja góða birtu. Útgengi er úr stofu á svalir til suðvesturs með fallegu útsýni.
Svefnherbergi eru þrjú talsins og öll með harðparketi á gólfi (ath. að ekki eru myndir af öllum herbergjum)
Baðherbergi er með eikarspónlagðri innréttingu sem hefur verið filmuð, baðkari og upphengdu salerni.
Þvottahús er innan íbúðar með ágætri innréttingu og góðri vinnuaðstöðu.
Harðparket er á gólfum í stofu og svefnherbergjum, en flísar á forstofu, baðherbergi og þvottahúsi.
Sérgeymsla í sameign á jarðhæð, skráð 6,5 m² - Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla
Bílastæði fyrir framan hús þar sem komið hefur verið fyrir hleðslustöðvum.

Vel staðsett íbúð í góðu fjölbýli með fallegu útsýni.
Nánari upplýsingar veitir Elka Guðmundsdóttir Fasteignasali, í síma 863-8813, tölvupóstur [email protected].


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
 

img
Elka Guðmundsdóttir
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Fasteignasalan TORG
Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
Fasteignasalan TORG

Fasteignasalan TORG

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
phone
img

Elka Guðmundsdóttir

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
2. jan. 2020
36.900.000 kr.
34.900.000 kr.
112.4 m²
310.498 kr.
10. des. 2015
21.600.000 kr.
290.250.000 kr.
1294.8 m²
224.166 kr.
24. sep. 2015
21.300.000 kr.
290.250.000 kr.
1294.8 m²
224.166 kr.
10. mar. 2008
11.375.000 kr.
861.250.000 kr.
3790.6 m²
227.207 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Fasteignasalan TORG

Fasteignasalan TORG

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
phone

Elka Guðmundsdóttir

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ