Lýsing
Eignin telur þrjú svefnherbergi, tvö baðherbergi, þar af eitt inn af svefnherbergi, rúmgóða stofu/borðstofu, eldhús, þvottahús og tvöfaldan bílskúr með millilofti. Gólfhiti er í húsinu. Húsið er allt endurnýjað frá grunni, allir lagnir nýjar, BOSE hljóðkerfi í stofu, allar innréttingar frá HTH, eignin er vel staðsett í enda botnlangagötu við hliðina á opnu væði og leikskóla.
Nánari upplýsingar veitir Jón G. Sandholt, löggiltur fasteignasali í síma 777-2288 eða [email protected]
Nánari lýsing
Anddyri er með parket á gólfi og fataskáp.
Stofa er rúmgóð með parket á gólfi, útgengt er á timburpall.
Borðstofa er samliggjandi stofu og eldhúsi í björtu og opnu rými.
Eldhús er með nýrri HTH innréttingu, vönduðum tækjum og parketi á gólfi. Opið við borðstofu.
Hjónaherbergi er rúmgott með parketi á gólfi og góðu skápaplássi. Inn af því er baðherbergi.
Svefnherbergi I er með parket á gólfi og fataskáp.
Svefnherbergi II er með parket á gólfi og fataskáp.
Baðherbergi er nýlega endurnýjað með HTH innréttingu, flísalagt, upphengt salerni og sturta. Innbyggð Hans Grohe blöndunartæki í sturtu.
Gestasalerni er með salerni og handlaug.
Þvottahús er með útgengi út á verönd.
Framkvæmdir:
Eignin hefur verið endurnýjuð frá grunni:
- Nýtt skólp og neysluvatnslagnir, allar lagnir nýjar
- Gólfhiti
- Allt rafmagn endurnýjað og ný tafla
- Veggir og loft endurnýjuð
- Innfelld lýsing
- Quick Step parket
- Nýjar innihurðir
- Allar innréttingar nýjar frá HTH
- Skipt um alla glugga og hurðir, vandaðir timbur/ál gluggar
- Þak endurnýjað
- Húsið klætt með Bond álklæðningu á álundirkerfi
- Steypt stétt með hitalögnum milli húss og bílskúrs
- Sólpallur stækkaður og garður tekinn í gegn
Húsið
Um er að ræða steypt einbýlishús byggt 1976 sem hefur verið endurnýjað fyrir utan bílskúr. Bílskúr er tvöfaldur, 62,5 fm með millilofti og rafdrifnum hurðum. Bílskúr skilast með standandi lerkiklæðningu, óvarið, mynd af bílskúr er einungis til viðmiðunar.
Nánari upplýsingar veitir Jón G. Sandholt, löggiltur fasteignasali í síma 777-2288 eða [email protected]
----------------------------------------------------------
Heimasíða Helgafells fasteignasölu
Facebook síða Helgafells
- Hafðu samband og við gerum söluverðmat á eign þinni, þér að kostnaðarlausu -
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr. 92.380,- m/vsk.
Helgafell fasteignasala bendir kaupendum á ríka skoðunarskyldu sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga. Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.