Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sigurður Maack Gunnarsson
Svanþór Einarsson
Theodór Emil Karlsson
Steingrímur Benediktsson
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1948
svg
176 m²
svg
6 herb.
svg
2 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Aukaíbúð
Opið hús: 16. mars 2026 kl. 17:00 til 17:30

Lýsing

** Opið hús mánudaginn 16. mars frá kl. 17:00 til 17:30 - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - [email protected] eða 698-8555 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - [email protected] eða 862-9416 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - [email protected] eða 690-8040  ** 

Fallegt og fjölskylduvænt 176 m2 einbýlishús með stórum suðurgarði ásamt góðri útiverönd með útieldhúsi og spa. Húsið er á tveimur hæðum, innréttað sem 2 íbúðir með sérinngangi á sitthvorri hæðinni en einnig er innangengt á milli hæðanna. Eignin stendur á 859 m2 lóð sem stendur ofan við Langholtsskóla en þangað er gengið beint út úr garðinum.


Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax

Efri hæðin skiptist í forstofu, hol, baðherbergi, tvö svefnherbergi,opið rými með eldhúsi, stofu og borðstofu. Stórt risloft er yfir íbúðinni,sem getur nýst sem annað rými en þar er steypt plata.
Neðri hæðin skiptist í forstofuhol/gang, stórt þvottahús, inntaksrými og geymslu, tvö svefnherbergi, baðherbergi, eldhús og stofu.

Lóðin er falleg og í rækt með stórum veröndum til suðurs. Heitur pottur, kaldur pottur og sána. Stórt mynstursteypt bílapalan er fyrir framan eignina með hitalögnum.


Endurbætur á eigninni samkvæmt upplýsingum frá seljanda: Árið 2018 til 2019 voru öll gólf flotuð og sett ný gólfefni, gólfhiti settur á neðri hæð. Á neðri hæð var baðherbergi stækkað, settar nýjar lagnir og tæki. Eldhús endurnýjað ásamt lögnum.  Efri hæð: eldhús fært inní alrými/stofu. Nýtt eldhús og lagnir og baðherbergi endurnýjað. Skipt var um allar innanhúslagnir og frárennslislagnir innan húsveggjanna. Forhitari settur í húsið. Rafmagn endurnýjað að hluta. Árið 2022 var steypt plan með hitalögnum (lokað kerfi),  settur heitur- og kaldur pottur og sauna.

Nánari lýsing: Efri hæð: Forstofa er með vínylflísum á gólfi. Úr forstofu er teppalagður stigi niður á neðri hæðina. Eldhús, stofa og borðstofa eru í björtu opnu rými með parketi á gólfi. Í eldhúsi er falleg innrétting með tveimur ofnum, helluborði og innbyggðri uppþvottavél.  Baðherbergi er vínylflísalagt með innréttingu, sturtu, vegghengdu salerni og handklæðaofni og tengi fyrir þvottavél er á baðherbergi. Gluggi er á baðherbergi. Svefnherbergi nr. 1 er rúmgott með parketi á gólfi og fataskápum. Svefnherbergi nr. 2 er með parketi á gólfi. Hol er með parketi á gólfi. Úr holi er stigi upp á risloft sem er ekki í fermetratölu eignarinnar. Risloftið er með þakgluggum og dúk á gólfi. Rými er nýtt í dag sem svefnrými.
Neðri hæð: Forstofuhol er mjög rúmgott með vínylflísum á gólfi. Úr forstofu er stigi upp á efri hæðina. Stórt þvottahús er inn af holi með glugga. Inntaksrými er inn af holi og er gott geymslurými inn af því. Eldhús er vínylflísalagt með fallegri innréttingu með combi ofni, helluborði og innbygðri uppþvottavél.  Stofa/borðstofa er rúmgóð með parketi á gólfi.  Baðherbergi nr. 2 er flísalagt með innréttingu, vegghengdu salerni, handklæðaofni og sturtu.  Svefnherbergi nr. 3 er rúmgott með parketi á gólfi og fataskápum. Svefnherbergi nr. 4 er rúmgott með parketi á gólfi. Gólfhiti er á neðri hæð hússins. Samkvæmt skráningu fasteignayfirlits HMS er heildar stærð hússins 171,9 m2 þ.e. íbúðarrými hússins 176 m2 og bílskúrsréttur 19,5 m2.

Verð kr. 159.000.000,-

 



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.

img
Svanþór Einarsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Fasteignasala Mosfellsbæjar
Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
Fasteignasala Mosfellsbæjar

Fasteignasala Mosfellsbæjar

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
phone
img

Svanþór Einarsson

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
20. jún. 2018
62.150.000 kr.
67.000.000 kr.
171.9 m²
389.761 kr.
20. mar. 2015
48.250.000 kr.
47.500.000 kr.
171.9 m²
276.323 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Fasteignasala Mosfellsbæjar

Fasteignasala Mosfellsbæjar

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
phone

Svanþór Einarsson

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ