Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sverrir Kristinsson
Kjartan Hallgeirsson
Guðlaugur Ingi Guðlaugsson
Daði Hafþórsson
Gunnar Helgi Einarsson
Gunnar Bergmann Jónsson
Jenný Sandra Gunnarsdóttir
Vista
fjölbýlishús

Vitastígur 17

101 Reykjavík

87.900.000 kr.

979.933 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2007954

Fasteignamat

77.400.000 kr.

Brunabótamat

49.100.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1961
svg
89,7 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur
Opið hús: 14. mars 2026 kl. 14:00 til 14:30

Fasteignasali tekur á móti áhugasömum í íbúð 201

Lýsing

Eignamiðlun kynnir:

Afar björt og smekkleg, fjögurra herbergja hæð í fallegu, steinsteyptu þríbýli í miðbænum. Íbúðin er á 2. hæð og er ein íbúð á hverri hæð. Hæðin er smekklega hönnuð með fallegum gólf- og loftlistum sem setja svip á rýmin. Hæðin er mikið endurnýjuð en m.a. hefur verið skipt um eldhús, baðherbergi uppgert og öll gólfefni og innihurðir endurnýjaðar. Tvö góð svefnherbergi og tvær stofur. Auðvelt væri að breyta borðstofu í þriðja svefnherbergið. Frábær eign fyrir fólk sem sækir í miðborgarlífið.

**Sækja söluyfirlit**

Eignin er skráð 89,7 fm og skiptist í forstofu, stofu, borðstofu, eldhús með útgengi á svalir, tvö svefnherbergi og baðherbergi. Íbúðinni fylgir 4,5 fm geymsla i kjallara. Sameiginlegt þvottahús er einnig staðsett í kjallara.

Lýsing eignar:
Inngangur: Sameiginlegur inngangur að fallegri sameign.
Forstofa: Rúmgóð með góðum, djúpum skáp og parketi á gólfi.
Stofa: Mjög björt og rúmgóð með stórum gluggum og parketi á gólfi.
Borðstofa: Rúmgóð og björt með góðum glugga og parketi á gófli. Borðstofa er opin við stofu og eldhús. Auðvelt væri að breyta borðstofu í þriðja svefnherbergið.
Eldhús: Opið með fallegri innréttingu og flísum á gólfum. Útgegni er á sólríkar vestursvalir frá eldhúsi.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf með upphengdu salerni, innréttingu, baðkari með sturtuaðstöðu og handklæðaofni. Góður, opnanlegur gluggi.
Svefnherbergi: Bjart og rúmgott með parketi á gófli og skápum.
Herbergi: Gott herbergi með parketi og innbyggðum skáp.
Þvottahús: Sameiginlegt og staðsett í kjallara.
Geymsla: 4,5 fm geymsla fylgir íbúð í kjallara.

Framkvæmdir og viðhald:
Skólp lagað 2012.
Skipt var um alla glugga 2009.
Járn, pappi og þakrennur endurnýjað 2025. Snjógildrur settar upp á sama tíma.
Rafmagnstafla íbúðar endurnýjuð 2013
Baðherbergi endurnýjað 2013
Eldhús endurnýjað 2013. Nýir efri skápar settir upp 2020 og innrétting filmuð.
Innihurðir endurnýjaðar 2013 og filmaðar 2020. Ný eldvarnarhurð inn í íbúð sett upp 2023.
Gólfefni í eldhúsi endurnýjuð 2020.

Nánari upplýsingar veitir:
Lilja Guðmundsdóttir löggiltur fasteignasali - s. 649-3868 eða [email protected]

***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook

Eignamiðlun

Eignamiðlun

Grensásvegi 11, 108 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
25. jún. 2020
46.750.000 kr.
51.500.000 kr.
89.7 m²
574.136 kr.
30. maí. 2017
37.650.000 kr.
47.500.000 kr.
89.7 m²
529.543 kr.
30. nóv. 2012
22.400.000 kr.
30.500.000 kr.
89.7 m²
340.022 kr.
28. jún. 2012
22.150.000 kr.
22.500.000 kr.
89.7 m²
250.836 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Eignamiðlun

Eignamiðlun

Grensásvegi 11, 108 Reykjavík