Opið hús: Krummahólar 10, 111 Reykjavík, Íbúð merkt: 01 03 02. Eignin verður sýnd sunnudaginn 15. mars 2026 milli kl. 13:30 og kl. 14:00.
Lýsing
Um er að ræða rúmgóða, bjarta og vel skipulagða 2ja herbergja íbúð á 3. hæð í snyrtilegur fjölbýlishúsi með lyftu. Sérinngangur er af svölum. Birt stærð eignar samkvæmt fasteignaskrá 75,6 fm. Sérmerkt bílastæði íbúðar er á bílaplani fyrir framan húsið. Búið er að lagfæra og endurnýja húsið töluvert að utan.
Eignin skiptist í forstofu, hol, eldhús / borðkrók, stofu, svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús innan íbúðar og sérgeymslu sem staðsett er í sameign svo og sameiginleg vagna- og hjólageymsla.
SMELLIÐ HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT STRAX
Nánari lýsing eignar:
Forstofa: Komið er inn í flísalagða forstofu með fatahengi.
Hol: Úr forstofu er gengið inn í rúmgott hol sem hægt er að nýta sem skrifstofurými eða annað, stafaparket á gólfi.
Stofa: Björt og rúmgóð, stafaparket á gólfi. Útgengi út á ca. 14 fm. suðursvalir með glerlokun, með fallegu óhindruðu útsýni, viðarhellur á svalagólfi munu fylgja, rafmagnstengill á svölum.
Eldhús / borðstofa: Með hvítri innréttingu, bakaraofn, helluborð og háfur, uppþvottavél, flísar milli skápa, rúmgóður eldhúskrókur við glugga með góðu rými fyrir borðstofuborð, flísar á gólfi.
Hjónaherbergi: Rúmgott, nýlegur fataskápur, parket á gólfi.
Baðherbergi: Hvít innrétting og veggskápur, baðker með sturtu, flísar á gólfi.
Þvottahús: Innan íbúðar, nýr hvítur skápur, tengi fyrir þvottavél og þurrkara, tengi fyrir vask, snúrur, flísar á gólfi.
Geymsla: Á jarðhæð er sérgeymsla.
Sameign: Á jarðhæð er snyrtileg sameign með sameiginlegri vagna- og hjólageymslu svo og sameiginlegu þvottahúsi
Lóð: Gróinn fallegur garður. Að framan er steypt stétt að húsi og malbikuðum bílastæðum. Að aftan er stór gróin lóð með hellulögðum verönd og leiktækjum, útgönguhurð er úr hjólageymslu út á baklóð. Sérmerkt bílastæði íbúðar er á bílaplani fyrir framan húsið.
Húsið: Húsinu tilheyrir lítil íbúð sem er í útleigu og gengur leigan upp í hússjóð fyrir húsið.
Búið er að endurnýja húsið nokkuð að utan undanfarin ár m.a.:
Húsið:
* 2010-2011 Byggt yfir svalir á suðurhlið.
* 2015 Múrviðgerðir á steyptum óklæddum útveggjum og þeir málaðir.
* 2015 Þak málað og þakkantur.
* 2016 Nýr myndavélasími.
* 2017 Suðurhurð í anddyri hússins endurnýjuð.
* 2018 Ný lyfta.
* 2020 Aðalrafmagnstafla endurnýjuð.
* Nýlega er búið að yfirfara þakkanta og skipta um rennur.
* 2026 Yfirstandandi framkvæmdir: Viðgerð og málun á þaki. Viðgerð og málun á gluggum á norðurhlið. Múrviðgerðir og málun á allri norðurhlið. Viðgerð á öllu tréverki á norðurhlið. Seljandi mun greiða hlut íbúðar af þessum framkvæmdum.
Íbúð:
* Nýr fataskápur í hjónaherbergi og þvottahúsi.
* Nýleg blöndunartæki í sturtu í baðkeri.
Rúmgóð og vel skipulögð íbúð á 3. hæð í lyftufjölbýli með frábærum suður svölum og þvottahúsi innan íbúðar. Íbúðin er mjög vel staðsett í Hólahverfinu, stutt er í skóla, leikskóla, íþróttamiðstöð, sundlaug og verslanir. Örstutt í náttúruperluna Elliðaárdal.
Nánari upplýsingar og bókun á skoðun gefur Hólmar Björn Sigþórsson, löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala í s. 893 3276 eða í netfangið [email protected].
----------------------------------------------------------
Heimasíða Helgafells fasteignasölu
Facebook síða Helgafells
- Hafðu samband og við gerum söluverðmat á eign þinni, þér að kostnaðarlausu -
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr. 92.380,- m/vsk.
Helgafell fasteignasala bendir kaupendum á ríka skoðunarskyldu sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga. Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.