Opið hús: Asparfell 6, 111 Reykjavík, Íbúð merkt: 06 03 04. Eignin verður sýnd þriðjudaginn 17. mars 2026 milli kl. 16:00 og kl. 16:30.
Lýsing
Húsinu hefur verið vel viðhaldið í gegnum árin meðal annars var farið í stórar framkvæmdir á gluggum, múr og þaki árið 2022 til 2023 sem er fullklárað. Einnig var nýlega komið fyrir djúpgámum á bílastæði. Öflugt húsfélag er í eigninni og húsvörður í föstu starfi á dagvinnutíma. Næg bílastæði eru við húsið.
Stutt er í alla almenna þjónustu hvort sem er í göngufæri eða með strætisvagnasamgöngum, leik- og grunnskólar í göngufæri ásamt líkamsrækt, sundlaug, bókasafni og íþróttaiðkun.
Forstofa með fataskáp.
Stofan er mjög björt og þaðan er útgengt á rúmgóðar suðursvalir.
Eldhús er við inngang íbúðar. Skipt var um hluta af innréttingu og sett ný borðplata ásamt eldhústækjum. Eldhúsið er opið að hluta inn að stofu.
Svefnherbergið er rúmgott með góðum glugga sem nýlega var skipt um. Fataskápur er í herberginu.
Baðherbergi er með flísum á gólfi og baðkar með sturtuaðstöðu.
Þvottahús er í sameign á hæðinni.
Sérgeymsla fylgir íbúðinni og er í sameign í kjallara hússins. Einnig er lítil geymsla í sameign á hæðinni.
Hjóla- og vagnageymsla er einnig í sameign.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.Fasteignasalan Garður bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
www.fastgardur.is | Bæjarhraun 12 | 220 Hafnafjörður | Fasteignasalan Garður