Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sverrir Kristinsson
Kjartan Hallgeirsson
Guðlaugur Ingi Guðlaugsson
Daði Hafþórsson
Gunnar Helgi Einarsson
Gunnar Bergmann Jónsson
Jenný Sandra Gunnarsdóttir
Vista
parhús

Akurgerði 31

108 Reykjavík

154.900.000 kr.

737.970 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2034466

Fasteignamat

111.300.000 kr.

Brunabótamat

89.100.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1956
svg
209,9 m²
svg
6 herb.
svg
3 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur
Opið hús: 15. mars 2026 kl. 14:30 til 15:00

Opið hús: Akurgerði 31, 108 Reykjavík. Eignin verður sýnd sunnudaginn 15. mars 2026 milli kl. 14:30 og kl. 15:00.

Lýsing

Eignamiðlun kynnir:

Virkilega fallegt og mikið endunýjað parhús að Akurgerði 31, 108 Reykjavík. Húsið er byggt árið 1956 og er skráð 191,8 m², búið er að grafa út rými á neðri hæðinni sem er í fullri nýtingu og því heildar nýting á eigninni um 210 fm. Húsið er á þremur hæðum ásamt bílskúr. Tvö nýlega uppgerð baðherbergi ásamt gestasalerni. Fjögur svefnherbergi, sér þvottahús, nýlega uppgert eldhús, borðstofa, stofa og sjónvarpshol. Mögulegt er að útbúa auka íbúð á jarðhæð. Mjög fallegur garður til suðurs með palli, heitum potti og 15 fm sérstæðum geymsluskúr. Húsið hefur verið mikið endurnýjað síðustu ár og er í góðu ásigkomulagi. Búið að skipta út öllum vatns og fráveitulögnum.

Nánari upplýsingar veitir Gunnar Bergmann Jónsson í síma 839-1600 eða [email protected]


Nánari lýsing eignar:
Inngangur inn í miðhæð eignarinnar. Forstofa með flísum á gólfi og fatahengi. Rúmgott nýlegt eldhús með góðu vinnuplássi, steinn á borðum, innbyggður ísskápur, innbyggður frystir og innbyggð uppþvottavél. Bosch eldavél, ofn og örbylgjuofn. Falleg vifta fyrir ofan eldavél. Borðstofa með frönskum gluggum og útgengi í suðurgarð með palli og heitum potti. Rúmgóð stofa með gluggum til suðurs. Þvottahús og gestasalerni á miðhæð. Nýlega búið að leggja gólfhita í alla miðhæðina.
Gengið niður teppalagðan stiga á jarðhæð. Önnur inngönguhurð framan við hús sem hægt væri að nýta sem sér inngang á jarðhæð og útbúa þar auka íbúð. Á jarðhæð eru tvö rúmgóð herbergi með gluggum, Nýlega uppgert baðherbergi með baðkari og stórum sturtuklefa með innbyggðum blöndunartækjum. Gólfhiti er á allri jarðhæðinni, nýlegar lagnir. Gott sjónvarpshol. Tæknirými með nýrri rafmagnstöflu, hitagrind og stýringu fyrir heitan pott.
Gengið er upp teppalagðan stiga á efri hæð. Tvö rúmgóð svefnherbergi, fataherbergi inn af hjónaherbergi og útgengi út á svalir. Uppgert baðherbergi með sturtuklefa, upphendu salerni og handklæðaofni. Köld geymsla yfir allri efri hæðinni. Nýlegir ofnar og lagnir á efri hæð.
Bílskúr með sér rafmagnstöflu, geymslulofti og vinnuaðstöðu í stúkuðu rými.
Suðurgarður með 90–100 m² palli úr plastefni. Heitur pottur með harðviðarklæðningu og geymslurými. Gróðurker fyrir ræktun. Ný 15 m² geymsla í efri garði.

Endurbætur síðustu ára: Eldhús, gestasalerni og bæði baðherbergi endurnýjuð að öllu leiti. Nýjar heita- og kaldavatnslagnir, ofnalagnir og gólfhiti.
Dren og nýjar frárennslislagnir. Rafmagn í kjallara endurnýjað, ný rafmagnstafla og lagnagrind. Nýjir gluggar í kjallara og að hluta á miðhæð. Þak ca. 12 ára, málað 2024. Búið er að tengja ryksugukerfi í eignina.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,4% - 0,8% hjá einstaklingum og 1,6% hjá lögaðilum af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðflutningsskjölum, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. þjónustusamning.
Eignamiðlun ehf. - Grensásvegur 11, 108 Reykjavík - [email protected] - Gunnar Bergmann Jónsson löggiltur fasteignasali.

***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook

img
Gunnar Bergmann Jónsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Eignamiðlun
Grensásvegi 11, 108 Reykjavík
Eignamiðlun

Eignamiðlun

Grensásvegi 11, 108 Reykjavík
img

Gunnar Bergmann Jónsson

Grensásvegi 11, 108 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
29. des. 2017
61.200.000 kr.
57.500.000 kr.
191.8 m²
299.791 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Eignamiðlun

Eignamiðlun

Grensásvegi 11, 108 Reykjavík

Gunnar Bergmann Jónsson

Grensásvegi 11, 108 Reykjavík