Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Hafdís Rafnsdóttir
Dórothea E. Jóhannsdóttir
Sigurður Gunnlaugsson
Jón Gunnar Gíslason
Hafliði Halldórsson
Aðalsteinn Bjarnason
Margrét Rós Einarsdóttir
Guðný Ösp Ragnarsdóttir
Elka Guðmundsdóttir
Vista
fjölbýlishús

Hverfisgata 49

101 Reykjavík

54.900.000 kr.

849.845 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2003311

Fasteignamat

58.750.000 kr.

Brunabótamat

29.650.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1949
svg
64,6 m²
svg
2 herb.
svg
1 baðherb.
svg
1 svefnh.
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Laus strax
Opið hús: 16. mars 2026 kl. 17:00 til 17:30

Opið hús: Hverfisgata 49, 101 Reykjavík, Íbúð merkt: 0201 (gengið inn við Vatnsstíg). Mánudaginn 16. mars á milli kl. 17:00 og kl. 17:30.

Lýsing

Fasteignasalan TORG kynnir í sölu rúmgóð 2 herbergja íbúð á 2. hæð við Hverfisgötu 49, 101 Reykjavík. Um er að ræða vel staðsetta eign í fjölbýlishúsi á vinsælum stað í miðborg Reykjavíkur. Eignin telur eitt svefnherbergi, anddyri, hol, eldhús, stofu/borðstofu og baðherbergi. Hugsalegt að möguleiki sé að fjölga svefnherbergjum í tvö með að færa eldhús í stofu og breyta eldhúsi í herbergi (sjá teikn.) Sér geymsla sem tilheyrir eigninni er staðsett á sömu hæð og í kjallara er sameiginlegt þvottahús ásamt vagna- og hjólageymslu. Húsið byggt 1949 og teiknað af Sigvalda Thordarsyni arkitekt. Frábær fyrstu kaup! Allar nánari upplýsingar veitir Aðalsteinn Bjarna Lgf., í s. 773-3532 eða [email protected]  *** SÆKJA SÖLUYFIRLIT HÉR ***    

Birt stærð eignar skv. fasteignaskrá HMS er 64,6 m² þar af er íbúð skráð 61,1 m² og sér geymsla 3 m² staðsett á sömu hæð. 

Frábær staðsetning í miðbæ Reykjavíkur í grennd við alla helsta þjónusta og verslanir ásamt fjölbreyttri flóru kaffi- og veitingahúsa. Leik-, grunn og menntaskóli í göngufjarlægð ásamt Sundhöll Reykjavíkur og fallegum göngu- og hjólaleiðum við sjávarsíðuna. Mikil uppbygging hefur verið á svæðinu og er Vatnsstígur frá Hverfisgötu upp á Laugaveg orðin göngugata með skemmtilegu torgi. Sjarmerandi eign í hjarta borgarinnar sem vert er að skoða. 

Lýsing eignar:
Komið inn í opið anddyri og hol með góðum fataskáp og parket á gólfi. Hol tengir saman önnur rými íbúðar. Á hægri hönd er eldhús og rúmgott svefnherbergi. Á vinstri hönd er stór og rúmgóð stofa og borðstofa með stórum gluggum sem snúa í átt að Hverfisgötu og parket á gólfi. Inn af holi er flísalagt baðherbergi með sturtuklefa. Sér geymsla sem tilheyrir eigninni er staðsett á sömu hæð við hlið íbúðar. 

Nánari lýsing eignar:
Anddyri/hol með parket á gólfi og rúmgóðum fataskáp.
Eldhús er opið inn af holi með parket á gólfi, hvítri innréttingu og dökkri borðplötu. Tvöfaldur ísskápur ásamt uppþvottavél og frístandandi skáp fylgir eigninni. 
Svefnherbergi er rúmgott með parket á gólfi, góðum glugga og fataskáp með speglahurðum. 
Stofan er björt og rúmgóð og rúmar vel bæði borðstofu og setustofu, með góðum gluggum og parket á gólfi.
Baðherbergi með sturtuklefa, salerni, handlaug, spegli á vegg ásamt hillum. Flísar á gólfi og á veggi að hluta. 
Sérgeymsla sem tilheyrir eign er staðsett á sömu hæð við hlið íbúðar.  
Þvottahús er sameiginlegt í kjallara hússins ásamt hjóla- og vagnageymslu.
Garður/lóð er sameiginlegur, snyrtileg aðkoma er að húsinu bæði fyrir framan og aftan hús en gengið er inn í húsið frá Vatnsstíg.

Framkvæmdir og viðhald undanfarin ár að sögn seljanda:
2012 - Múrviðgerðir á ytra byrði hússins.
2013 - Dyrasími var endurnýjaður.
2013 - Húsið málað að utan og skipt um gluggakarma.
2014-2016 - Ofnalagnir endurnýjaðar með utanáliggjandi lögnum.
2017 - Skipt um skólplagnir úti og í grunni, frárennslislagnir inni voru fóðraðar.
2018 - Stigagangur í sameign tekinn í gegn, flísalagður og málaður.
2019 - Þak nýlega endurnýjað að hluta skv. fyrri eiganda.
2021 - Skipt var um teppi á stigagang í sameign
Nýlegar raflagnir í íbúð og nýleg rafmagnstafla í sameign

ERTU Í SÖLUHUGLEIÐINGUM? SMELLTU HÉR FYRIR FRÍTT VERÐMAT

Nánari upplýsingar veita:
Aðalsteinn Bjarnason
- Löggiltur fasteignasali í Félagi fasteignasala / s. 773-3532[email protected]
Margrét Rós Einarsdóttir - Löggiltur fasteignasali í Félagi fasteignasala / s. 856-5858 / [email protected]

KÍKTU Í HEIMSÓKN TIL MÍN Á FACEBOOK
VILTU VITA HVAÐ VIÐSKIPTAVINIR OKKAR HAFA SEGJA? SMELLTU HÉR


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
 

img
Aðalsteinn Bjarnason
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Fasteignasalan TORG
Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
Fasteignasalan TORG

Fasteignasalan TORG

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
phone
img

Aðalsteinn Bjarnason

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
31. júl. 2019
30.550.000 kr.
34.200.000 kr.
64.6 m²
529.412 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Fasteignasalan TORG

Fasteignasalan TORG

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
phone

Aðalsteinn Bjarnason

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ