Opið hús: Fagrahlíð 1, 221 Hafnarfjörður, Íbúð merkt: 01 01 01. Eignin verður sýnd þriðjudaginn 17. mars 2026 milli kl. 17:30 og kl. 18:00.
Lýsing
Skipulag: Forstofa, gangur, stofa/borðstofa, eldhús, hjónaherbergi, 2 barnaherbergi, baðherbergi og þvottahús/geymsla.
Smelltu hér til að sækja söluyfirlit. Fáðu frítt söluverðmat fyrir þína eign.
Eignin er skráð samkvæmt HMS 106,2 fm.
Nánari lýsing:
Forstofa er rúmgóð með góðum skápum og flísar á gólfi.
Stofa/borðstofa í rúmgóðu alrými með parket á gólfi. Útgengt á góðan sólpall á sérafnotareit í garði.
Eldhús í alrými með snyrtilegri innréttingu, 2 ofnum í vinnuhæð, eyju með góðu skúffuplássi og helluborði.
Hjónaherbergi er rúmgott með góðu skápaplássi og parket á gólfi.
Barnaherbergi eru 2 og bæði rúmgóð.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með "walk-in" sturtu og góðri innréttingu og speglum.
Þvottahús/geymsla er innaf eldhúsi með flísum á gólfi, góðri innréttingu og með skolvask.
Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.
Eigninni fylgir merkt einkabílastæði til hliðar við sérinngang á suðurhlið hússins. Góð staðsetning í grónu hverfi þaðan sem stutt er í leik- og grunnskóla, verslanir, þjónustu og góðar gönguleiðir.
Nánari upplýsingar um eignina veitir Aðalsteinn Jón Bergdal, löggiltur fasteignasali, í síma 767-0777 eða á netfanginu [email protected].
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.