Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Guðmundur Th Jónsson
Sigríður Kjartansdóttir
Vista
einbýlishús

Laugavegur 28A

101 Reykjavík

199.000.000 kr.

1.452.555 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2004816

Fasteignamat

107.450.000 kr.

Brunabótamat

73.150.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1905
svg
137 m²
svg
9 herb.
svg
2 baðherb.
svg
7 svefnh.
svg
Sérinngangur

Lýsing

Fasteignamarkaðurinn ehf. s: 570-4500 kynnir til sölu 7 herbergja gistiheimili með öllum leyfum og mjög góðum tekjumöguleikum í 137,0 fermetra fasteign á þremur hæðum, kjallara, hæð og ris, við Laugaveg 28a í Reykjavík.

Ástand eignarinnar er gott en hún var öll endurnýjuð árið 1999, þ.m.t. gler, gluggar, járn á húsi og þaki, þakrennur, niðurföll, útihurðir og allar lagnir. Vaskar eru í öllum herbergjum á 1. hæð og á rishæð. Eignin stendur á 177,0 fermetra eignarlóð og er aðkoma að húsinu bæði frá Laugavegi og frá Grettisgötu. 
Skv. upplýsingum frá fyrrum og núverandi eiganda hefur verið tekið jákvætt í það af hálfu byggingaryfirvalda að hækka húsið um eina hæð, en slík framkvæmd gæti bætt 3 herbergjum við eignina og aukið tekjumöguleika þó nokkuð.

Eignin hefur verið í góðum rekstri undir stjórn núverandi eiganda sl. 10 ár.
Eignin er einföld í rekstri með self check in kerfi og þrifum á húsi, líni og lérefti er útvistað til þriðja aðila.

Frábær staðsetning á rólegum stað í hjarta miðborgarinnar.


Eignin skiptist þannig:
Á 1. hæð hússins, sem er 53,8 fermetrar að stærð og með aukinni lofthæð eru:
Forstofa, flísalögð og með fatahengi. 
Miðrými, parketlagt og með ágætri eldhúsinnréttingu með tengi fyrir uppþvottavél og borðaðstöðu.
Tvö 2ja manna íbúðarherbergi, rúmgóð og parketlögð. 
Eitt eins manns íbúðarherbergi, parketlagt og rúmgott. 
Baðherbergi, linoleumdúklagt gólf, sturtuklefi og vegghengt wc. 
Ræstikompa, með vaski er undir innistiga.

Á efri hæð hússins, sem gengið er á um fallegan parketlagðan stiga frá miðrými 1. hæðar og er 46,3 fermetrar að stærð eru:
Miðrými, parketlagt og með útgengi á svalir til suðurs og vesturs. Í miðrými, sem er með kvistglugga auk útgengis á svalir, mætti útbúa baðherbergi.
2ja manna herbi, stórt, parketlagt og með tveimur stórum kvistum.  
1 manns herbergi, parketlagt og rúmgott með kvistglugga. 

Kjallari hússins, sem er 50,4 fermetrar að stærð, og er með sérinngangi af lóð skiptist þannig:
Forstofa: flísalögð og með fatahengi.
Miðrými, flísalagt og með glugga, lítilli eldhúsinnréttingu með vaski og fastri borðaðstöðu.  
Tvö 2ja manna herbergi, rúmgóð, flísalögð. 
Baðherbergi, rúmgott með glugga, flísalagt gólf, vegghengt wc. og sturtuklefi. 
Geymsla, flísalögð.

Húsið að utan lítur ágætlega út og var allt endurgert árið 1999, þ.m.t. járn á húsi og þaki, þakrennur, niðurföll, gler, gluggar, útihurðir o.fl.   

Sjá nánar inn á Booking.com

Allar nánari upplýsingar veittar á skrifstofu Fasteignamarkaðarins ehf. í síma 570-4500 eða á netfanginu [email protected]

Fasteignamarkaðurinn

Fasteignamarkaðurinn

Óðinsgötu 4, 101 Reykjavík
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
23. feb. 2017
39.610.000 kr.
92.500.000 kr.
137 m²
675.182 kr.
12. apr. 2011
27.550.000 kr.
32.500.000 kr.
135.5 m²
239.852 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Fasteignamarkaðurinn

Fasteignamarkaðurinn

Óðinsgötu 4, 101 Reykjavík
phone