Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sigurður Sveinn Sigurðsson
Björn Davíðsson
Vista
fjölbýlishús

Mýrarvegur 118 íbúð 201

600 Akureyri

52.900.000 kr.

658.780 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2149122

Fasteignamat

41.150.000 kr.

Brunabótamat

40.500.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1958
svg
80,3 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Útsýni
svg
Sameiginl. inngangur
Opið hús: 18. mars 2026 kl. 16:15 til 17:00

Lýsing

Fasteignasalan Hvammur 466 1600

Mýrarvegur 118 íbúð 201 - Björt og falleg 3ja herbergja íbúð á efri hæð/efstu í þríbýlishúsi á vinsælum stað á Brekkunni - stærð 80,3 m²,  nýtanlegir fermetrar eru fleiri.

Eignin skiptist í hol, eldhús, stofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi með þvottaaðstöðu, þrjár geymslur innan íbúðar og sér geymslu í kjallarnaum. 

Gengið er inn um sameiginlegan inngang með flísum á gólfi og upp steyptan og málaðan stiga upp í íbúð. 
Hol er með flísum á gólfi, drapplakkaðar. Af holi er gengið inn í öll helstu rými íbúðar. 
Eldhús er með ljósu harðparketi á gólfi, hvítri innréttingu með flísum á milli skápa og skemmtilegum glugga með útsýni til austurs. Sitt hvoru megin við innréttinguna, undir súð eru geymslur.
Stofa er með ljósu harðparketi á gólfi, gluggum til tveggja átta og hurð út á suðvestur svalir. 
Svefnherbergin eru tvö, bæði rúmgóð og með ljósu harðparketi á gólfi. Í barnaherberginu er fjórfaldur fataskápur sem fylgir með við sölu eignar. Í hjónaherberginu er fellistigi upp á loft og lítil geymsla undir súð. 
Baðherbergi var endurnýjað árið 2022.  Þar eru með flísar á gólfi og þiljur á veggjum, hvít innrétting, upphengt wc, sturta með glerhurðum og opnanlegur gluggi. Tengi er fyrir þvottavél og þurrkara inn á baðherberginu. 

Í kjallaranum er sér geymsla, skráð 5,0 m² að stærð. 

Annað
- Nýtt harðparket var lagt á íbúðina árið 2022.
- Fyrir framan húsið er sameiginlegt þrefalt steypt bílaplan.
- Gler hefur verið endurnýjað að stærstum hluta.
- Raflagnir hafa verið endurnýjaðar að hluta, skipt um tengla og tafla í sameign hefur verið endurnýjuð.
- Vatnslagnir voru endurnýjaðar að hluta árið 2024.
- Búið er að taka inn ljósleiðara.
- Fallegt útsýni er úr íbúðinni. 
- Eignin er í einkasölu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Hvammur Fasteignasala

Hvammur Fasteignasala

Hafnarstræti 19, 600 Akureyri
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
6. maí. 2022
22.850.000 kr.
42.600.000 kr.
80.3 m²
530.511 kr.
14. okt. 2021
25.500.000 kr.
27.000.000 kr.
96.1 m²
280.957 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Hvammur Fasteignasala

Hvammur Fasteignasala

Hafnarstræti 19, 600 Akureyri
phone