Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sigurður Sveinn Sigurðsson
Björn Davíðsson
Vista
raðhús

Laugartún 6b

606 Akureyri

51.500.000 kr.

577.354 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2160482

Fasteignamat

49.600.000 kr.

Brunabótamat

52.650.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 1991
svg
89,2 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Útsýni
svg
Sérinngangur
Opið hús: 18. mars 2026 kl. 16:15 til 17:00

Lýsing

Fasteignsalan Hvammur 466 1600

Laugartún 6b - 3ja herbergja raðhúsaíbúð á einni hæð á Svalbarðseyri - stærð 89,2 m²

Eignin skiptist í forstofu, gang, eldhús, stofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og geymslu.

Forstofa er með flísum á gólfi.
Eldhús, upprunaleg innrétting sem búið er að filma og flísar á milli skápa. Flísaplötur eru á gólfum.
Stofa og gangur eru með plast parketi á gólfi. Í stofu eru stórir gluggar til vesturs. 
Svefnherbergin eru tvö, bæði ágætlega rúmgóð, með plast parketi á gólfi og fataskápum. Hurð er út úr hjónaherberginu á baklóð. 
Baðherbergi er með flísum á gólfi og hluta veggja, hvítri innréttingu, wc, baðkari með sturtutækjum og opnanlegum glugga. 
Þvottahús og geymsla eru til hliðar úr forstofunni. Þar er lakkað gólf, bekkur með vask, efriskápar, hillur og opnanlegur gluggi. Fellistigi er í geymslunni upp á loft. 

Fyrir framan íbúðina er steypt stétt og rúmgott bílaplan með möl í.

Annað 

- Búið er að taka inn ljósleiðara.
- Stutt í leik- og grunnskóla.
- Eignin er laus til afhendingar í byrjun júlí 2026.
- Eignin er í einkasölu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Hvammur Fasteignasala

Hvammur Fasteignasala

Hafnarstræti 19, 600 Akureyri
phone
Hvammur Fasteignasala

Hvammur Fasteignasala

Hafnarstræti 19, 600 Akureyri
phone