Opið hús: Jöfursbás 11, 112 Reykjavík, Íbúð merkt: 104. Eignin verður sýnd sunnudaginn 22. mars 2026 milli kl. 12:00 og kl. 12:30.
Lýsing
Borgir fasteignasala kynnir eignina Jöfursbás 11, 112 Reykjavík, nánar tiltekið eign merkt 01-04, fastanúmer 251-6677 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
Falleg 2ja herbergja íbúð á jarðhæð, 46,4 fm, staðsetta í nýlegu og barnvænu hverfi nyrst í Gufunesi með fallegu útsýni yfir Geldinganes og Viðey.
Hér má nálgast söluyfirlit yfir eignina Söluyfirlit
Íbúðin er björt og vel skipulögð með opnu eldhúsi og stofu, rúmgóðu svefnherbergi og baðherbergi með tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Úr stofu er gengið beint út í garð.
Helstu kostir:
• Sér inngangur
• Forgangur að kaupum fyrir 18–40 ára
• Gæludýr velkomin
• Sameiginlegt þvottahús með vélum
• Vagna- og hjólageymsla
• Sameiginlegur salur í uppbyggingu fyrir íbúa
Einstök staðsetning við sjóinn með göngu- og hjólastígum meðfram ströndinni, leiksvæðum og fallegu umhverfi.
Nánari upplýsingar veita:
Bjarklind Þór, löggiltur fasteignasali – 690 5123 | [email protected]
Jóhanna Margrét Jóhannsdóttir, löggiltur fasteignasali – 820 0788 | [email protected]
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.
Vill Borgir því skora væntanlega kaupendur á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bæra sérfræðinga um nánari skoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 70.000 mvsk.