Upplýsingar
Byggt 1967
169,3 m²
5 herb.
1 baðherb.
3 svefnh.
Þvottahús
Bílskúr
Sérinngangur
Opið hús: 21. mars 2026
kl. 14:00
til 14:30
Lýsing
Eignamiðlun kynnir:
Afar björt og rúmgóð 4-5 herbergja sérhæð með bílskúr á vinsælum stað í Hvassaleitinu. Fallegt hús sem teiknað var að Kjartani Sveinsyni árið 1967. Stórar, bjartar stofur og fjögur svefnherbergi skv. teikningu. Í dag eru þau þrjú en auðvelt er að breyta aftur til fyrra horfs. Þrjár íbúðir eru í húsinu, ein á hverri hæð með sérinngangi. Íbúðin er á miðhæð. Húsið hefur nýlega verið múrviðgert og málað og þak yfirfarið og málað. Frábær fjölskyldueign sem býður upp á ýmsa möguleika. Stutt í alla þjónustu, skóla og íþróttasvæði.Nánari upplýsingar veitir: Lilja s. 649-3868 eða [email protected]
**Sækja söluyfirlit**
Eignin er skráð 169,3 fm, þar af er bílskúr skráður 28,6 fm. Eignin skiptist í forstofu, stofu, borðstofu, eldhús, þvottahús, þrjú svefnherbergi (áður fjögur) og baðherbergi. Íbúðinni fylgja tvær geymslur i kjallara, samtals 12,2 fm. Innangengt er úr forstofu niður í kjallara.
**Sækja söluyfirlit**
Nánari lýsing:
Forstofa: Rúmgóð með flísum á gólfi og fatahengi. Innangengt er úr forstofu niður í kjallara.
Forstofuherbergi: Rúmgott og bjart herbergi með parketi á gólfi.
Þvottahús: Staðsett inn af forstofu með góðum glugga.
Eldhús: Snyrtileg ljós innrétting með góðu skápaplássi og ofni í vinnuhæð. Góður borðkrókur fyrir enda eldhúss. Rýmið er bjart með stórum glugga. Parket á gólfi.
Borðstofa: Staðsett í miðju íbúðar. Mjög rúmgott og bjart með parketi á gólfi. Útgengi á stórar suðursvalir.
Stofa: Björt og falleg stofa með stórum gluggum. Parket á gólfi. Útgengi á vestursvalir.
Svefnherbergisgangur: Útgengi á svalir frá svefherbergisgangi. Parket á gólfi.
Hjónaherbergi: Mjög rúmgott með parketi á gólfi og góðu skápaplássi.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf með salerni, handlaug og sturtuklefa.Góður, opnanlegur gluggi.
Herbergi: Mjög rúmgott með teppi á gólfi. Þetta herbergi var áður tvö herbergi og væri mjög auðvelt að breyta því aftur til fyrra horfs.
Bílskúr: Góður 28,6 fm bílskúr. Gluggar til vesturs. Kalt vatn og rafmagn. Rafdrifin bílskúrshurð.
Geymslur: Tvær geymslur fylgja hæð í kjallara. Önnur er 7,8fm og hin 4,4 fm. Innangengt er úr forstofu í kjallara.
Garður: Garður er gróinn og fallegur með hekki og grasflöt. Garður er í sameign.
Um er að ræða frábæra fjölskyldueign. Þjónusta, skóli og íþróttamannvirki eru í göngufæri og stutt í stofnbrautir.
Nánari upplýsingar veitir: Lilja Guðmundsdóttir, löggiltur fasteignasali í s. 649-3868 eða [email protected]
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook