Upplýsingar
Byggt 1962
172,8 m²
5 herb.
2 baðherb.
4 svefnh.
Þvottahús
Bílskúr
Sérinngangur
Opið hús: 19. mars 2026
kl. 17:00
til 18:00
Opið hús: Safamýri 87, 108 Reykjavík. Eignin verður sýnd fimmtudaginn 19. mars 2026 milli kl. 17:00 og kl. 18:00.
Lýsing
Eignamiðlun kynnir:
Mjög falleg samtals 172,8 fermetra neðri sérhæð á þessum vinsæla stað. Möguleiki á fjórum svefnherbergjum auk vinnuherbergis. Samkvæmt skráningu fasteignamats er birt heildarstærð eignarinnar 172,8 m², þar sem íbúðin telst vera 146,7m² sem skiptist í 134,5 m² íbúð, 6,6 m² þvottahús og 5,6 m² geymslu í kjallara og bílskúr sem er er 26,1m². Stutt er í alla þjónustu, leikskólinn Álftaborg og Álftamýraskóli eru steinsnar frá sem og íþróttasvæði Víkings í Safamýri. Eignin er hönnuð og teiknuð af Kjartani Sveinssyni og er teikningin dagsett í nóvember 1960. Eignin ber öll helstu einkenni Kjartans og þessa tímabils með stórum og björtum gluggum, skýru og rökréttu skipulagi og góðri nýtingu.Allar upplýsingar veitir Ólafur H. Guðgeirsson, MBA, lgfs., í síma 663-2508 eða [email protected] sem einnig sýnir eignina.
Aðkoma að húsinu er opin og rúmgóð, með breiðu bílaplani fyrir framan tvöfaldan bílskúr, og breiðum tröppum upp að inngangi á annarri hæð þar sem eru sér inngangar í báðar stærri íbúðir hússins. Í húsinu eru tvær stærri sérhæðir á efri hæðum og tvær minni íbúðir á jarðhæð.
Gengið er inn um sérinngang og inn í forstofu þar sem eru upprunalegar mósaík flísar á gólfi. Allar hurðir eru upprunalegar, sem setur mikinn svip á eignina um leið og komið er inn, og hafa fengið gott viðhald og umhirðu og líta mjög vel út. Úr forstofu eru dyr að holi eignarinnar, stóru tvískiptu herbergi sem nýtist sem svefnherbergi og vinnuherbergi, fullbúnu nýju baðherbergi með sturtu og að stiga sem liggur í kjallara hússins.
Hol íbúðarinnar er rúmgott og bjart, opið í eldhús til hægri, borðstofa og stofa framundan í einu opnu og björtu rými. Stór gluggi og svaladyr í borstofurými sem veita mikilli birtu í holið. Til vinstri úr holi eru dyr að gangi þar sem eru þrjú svefnherbergi og baðherbergi ásamt dyrum út á svalir eignarinnar, sem eru mjög rúmgóðar, flísalagðar, á suðvestur horni hússins.
Hol, borðstofa, stofa og eldhús eru í einu samtengdu rými, en veggur skilur að eldhús og stofu. Rýmið er mjög bjart og vistlegt, stofan björt með stórum gluggum í tvær áttir, eldhúsið er með stórum eikarlitum innréttingum, með einstaka stál-frontum, með gráum kantlímdum borðplötum og sérlega fallegum mosaík-flísum á veggjum. Flísarnar eru á öllum veggnum ofan við eldhúsbekkinn þannig að hægt er að færa til efri skápana með lágmarks fyrirhöfn. Eldavélin er sérlega vönduð gaseldavél með stórum stállitum háf, kúturinn í skáp við hlið vélarinnar. Innréttingunni fylgir „barborð“ með svartri linoleum borðplötu og fjórum barstólum. Á gólfum í stofum og eldhúsi er fallegt gegnheilt eikarparket, sem einnig er á gangi og svefnherbergjum
Á herbergjagangi eru á teikningu þrjú herbergi en í dag er búið að sameina tvö herbergi í eitt þannig að í dag eru þar tvö rúmgóð herbergi. Lítið mál er að breyta þessu aftur til baka. Hjónaherbergi er mjög rúmgott með stórum fataskáp á heilum vegg. Skápurinn er upprunalegur, með sérlega fallegum tekk hurðum. Svaladyr eru á gangi næst hjónaherbergi. Baðherbergi var endurnýjað fyrir einhverjum árum með mjög smekklegum hætti, með drapplitum flísum á veggjum og gólfi að hluta, og með steinflísum á klósettkassa, ofan við vask og á gólfi að hluta. Baðkar með sturtu og gleri, opnanlegur gluggi.
Í forstofu er annars vegar sérlega smekklegt nýtt baðherbergi með sturtu, og hins vegar rúmgott herbergi með fataskáp og parket á gólfi, með minna herbergi innaf sem nýtt er sem skrifstofa. Úr forstofu er gengið í stiga að kjallara, þar sem er geymsla og þvottaherbergi. Í bílskúr, sem er með gryfju, er bæði heitt og kalt vatn en ekki aðgengilegt eins og er. Bílskúrsgólf er flísalagt.
Húsið hefur að sögn seljenda fengið gott viðhald undanfarna áratugi. Meðal framkvæmda má nefna:
- Hitakútum skipt út fyrir varmaskipti og eitt sameiginlegt kerfi 2014
- Dren lagt og garður endurnýjaður 2015
- Hús málað 2018 og 2019
- Endurnýjun stofntöflu 2019
- Litla baðherbergið endurnýjað og sturta útbúin 2021
- Ný rafmagnstafla í íbúð 2021
- Snjóbræðslukerfi í tröppum lagað 2024
- Ný klóaklögn og brunnur sett 2024
- Endurnýjað rör fyrir klósettkassa á baðherbergi 2024
- Skipt um svalahurðir og glugga á gangi og í eldhúsi 2007, skipt var um gler í stærri stofugluggunum (sem snúa út að götu) árið 2020 og 2021.
- Skipt var um þak hússins fyrir tíma núverandi eigenda.
Mjög falleg eign, frábær hönnun sem vert er að skoða.
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er fyrir einstaklinga 0,8% af heildarfasteignamati eignar. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi fyrir lögaðila er 1,6% af heildarfasteignamati eignar.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, veðleyfi og mögulega fleiri skjölum - kr. 2.500 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu samkvæmt kaupendasamningi.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Eignamiðlun fasteignasala bendir fasteignakaupendum á ríka skoðunarskyldu kaupenda sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Kaupanda er bent á að nýta sér þjónustu fagmanna við skoðun fasteigna, en mælt er með því að kaupendur fasteigna fái óháðan fagaðila til að framkvæma formlega ástandsskoðun á eignum sem gert er tilboð í.
Eignamiðlun fasteignasala | Grensásvegur 11 | 108 Reykjavík | Sími 588 9090 | www.eignamidlun.is
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook