Lýsing
Viltu kynnir Glæsilegt parhús á einni hæð í Grænulaut 25 Hlíðarhverfi Reykjanesbæ. Eignin er skráð 203,90 fm og þar af er bílskúrinn skráður 26.1 fm Húsið er byggt árið 2019 af Byggingarfélag Gylfa og Gunnars hf.
Húsið skiptist í 4 rúmgóð svefnherbergi, 2 baðherbergi, stofu, borðstofu, eldhús, þvottahús og bílskúr. Fallegt útisvæði með stóri og góðri timbur verönd með heitum potti og geymsluskúr.
Staðsetningin er hreint út sagt frábær.
Stutt er í alla nauðsynlega þjónustu, öruggar göngu- og hjólaleiðir í skóla og íþróttaaðstöðu sem er í næsta nágrenni.
Fáðu nánari upplýsingar og gerðu tilboð á sölusíðu eignarinnar.
Allar nánari upplýsingar veita:
Elísabet Kvaran löggiltur fasteignasali í síma 781-2100, [email protected]
Karólína Íris löggiltur fasteignasali í síma 772-6939, [email protected]
Nánari lýsing:
Anddyri: er með rúmgóðum fataskáp og flísum á gólfi.
Eldhús, borðstofa og stofa: er í björtu sameiginlegu rými með gólfsíðum gluggum og útgengi á góða timburverönd með heitum potti. Einnig er búið að setja upp góðan geymsluskúr í garðinum.
Eldhús: er með hvítri innréttingu með dökkum efri skápum og stein borðplötu. Bakarofn og örbylgjuofn er í vinnuhæð. Eldunareyju er með AEG spanhelluborði, gufugleypi með kolasíu frá Bræðrunum Ormsson. Uppþvottavél og ísskápur frá Electrolux fylgja.
Baðherbergi: Er með hvítri innréttingu og speglaskáp, upphengdu salerni, handklæðaofn, sturtu og baðkari. Flísar eru á gólfi og veggjum.
Þvottahús: er með hvítri innréttingu frá GSK og ræstivaski. Flísar eru á gólfi. Niðurfall er í gólfi og tengingar fyrir þvottavél og þurrkara
gert er ráð fyrir barkalausum þurrkara´´
Svefnherbergin eru 4: rúmgóð með góðum fataskápum og parketi á gólfum.
Hjónasvíta: er björt og rúmgóð með fataherbergi og baðherbergi innaf því. Baðherbergið er með hvítri innréttingu, speglaskáp, upphengdu salerni, handklæðaofn og sturtu. Flísar eru á gólfi og veggjum. Útgengi er út í garð frá hjónaherbergi.
Blískúr: Innangengt er úr anddyri í rúmgóðan bílskúr. Geymsla er innaf bílskúr .
Innréttingar og fataskápar eru frá GKS hvítir höldulausir með fræstu gripi. Innrétting í þvottahús er með höldum.
Blöndunartæki eru frá Tengi.
Innihurðar eru frá Parka ehf. og framleiddar í Þýskalandi .
Gluggar eru álklæddir timburgluggar, Verandahurðir eru rennihurðir frá Gluggasmiðjunni ehf.
Útiljós og rafmagnstengill er á verönd..Stéttar næst húsum eru hellulagðar, Bílastæði eru hellulögð
Hiti er í bílastæðum við húsið. Timbur verönd með heitum potti og skjólgirðing
Byggingaraðili
Byggingarfélag Gylfa og Gunnars hf., www.bygg.is
Fyrirvarar:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill seljandi því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteignarinnar fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.