Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Páll Heiðar Pálsson
Helen Sigurðardóttir
Hrafnkell Pálmarsson
Ingibjörg Reynisdóttir
Vista
fjölbýlishús

Álfheimar 26

104 Reykjavík

69.900.000 kr.

879.245 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2021088

Fasteignamat

63.000.000 kr.

Brunabótamat

38.600.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1959
svg
79,5 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Sameiginl. inngangur
Opið hús: 24. mars 2026 kl. 17:00 til 17:30

Opið hús: Álfheimar 26, 104 Reykjavík, Íbúð merkt: 01 01 03. Eignin verður sýnd þriðjudaginn 24. mars 2026 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.

Lýsing

Pálsson Fasteignasala kynnir:

Falleg og björt, vel skipulögð 3 ja herbergja íbúð á eftirsóttum stað í Laugardalnum.
Húsið og íbúðin er mikið endurnýjuð á síðustu árum.


* Nýtt þak 2025
* Einstök staðsetning
* Allir gluggar endurnýjaðir 2026
* Baðherbergið tekið algjörlega í gegn 2023
* Nýjar innihurðir og nýtt parket.

Nánari upplýsingar
Inga Reynis lgf í síma 820-1903,  [email protected] 


Eignin er skrá samkvæmt Þjóðskrá Íslands 79.5 fm og þar af er sérgeymsla 4.4 fm.

Eignin skiptist í forstofu, hol, stofu/borðstofu með útgengni á suðurvestur svalir, eldhús, tvö svefnherbergi og baðherbergi.
Forstofa er með opnu fatahengi og parket á gólfi.
Eldhús er á hægri hönd þegar komið er inn í íbúð. Viðarinnrétting sem er ný lökkuð með ljósum lit og settar svartar höldur á tveimur veggjum. Innbyggð uppþvottavél fylgir og bakaraofn í vinnuhæð. Í innréttingu á öðrum veggnum er aðstaða og tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Parket og hiti á gólfi.
Stofa er björt með útgengni út á suðursvalir. Parket á gólfi.
Hjónaherbergi er rúmgott með nýjum fataskáp frá Fríform og parket á gólfi.
Barnaherbergi er með viðarfataskápum og parket á gólfi.
Baðherbergi var algjörlega endurgert af fagaðilum, settar fallegar spænskar flísar frá Álfaborg í hólf og gólf.

Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla er í kjallara auk sameiginlegrar þvottaaðstöðu og kyndiklefa.

Helstu framkvæmdir síðustu ár að sögn seljenda.
Íbúðin :

Haust 2021: Eldhúsinnrétting lökkuð í ljósum lit og höldur lakkaðar svartar
Febrúar 2023: Gólf flotað að hluta, þröskuldar fjarlægður og lagt hljóðeinangrandi undirlag og nýtt parket á alla íbúðina.
Mars 2023: Sett nýjar hurðar og hurðarkarma.
Apríl 2023: Baðherbergi gert fokhelt og endurnýjað að öllu leyti, veglegar flísar frá spænska merkinu Porcelanosa úr Álfaborg lagðar á gólf og veggi. Allt verkið var framkvæmt af fagmönnum frá fyrirtækinu G-verk. 
Maí 2023: Sett upp ný fataskápainnrétting frá Fríform í hjónaherbergi.
Ágúst 2023: Sérsaumaðar gardínur ásamt braut sett upp í stofu. Stendur til boða fyrir væntanlega kaupendur að kaupa þær á sanngjörnu verði.

Húsið :
Farið var í yfirgripsmiklar framkvæmdir á ytra byrði hússins sem hófust vorið 2025 í kjölfar ástandsskoðunar og skýrslu sem var gerð af fyrirtækinu Verksýn og munu framkvæmdirnar klárast fyrir sumarið 2026. Fyrirtækið Vernd og viðhald fasteigna hefur verið eftirlitsaðili framkvæmdanna á meðan þeim stendur.
Nóvember 2022: Skólp og lagnir myndaðar og metnar í góðu standi
Ágúst 2024: Hús sprunguviðgert
Maí-Júní 2025: Þak algjörlega endurnýjað, nýtt járn, endurnýjun þaksperra, endurbætt loftun um þak, nýjar þakrennur og þakkantar. 
Maí-september 2025: Ytra byrði blokkar múrviðgert
Júlí-ágúst 2025: Húsið málað.
September 2025: Tröppur að hjólageymslu og trappa fyrir utan útidyrahurð múraðar
Október 2025: Svalagólf bollaslípað og stendur til að mála gólfið með epoxy vor 2026 (innifalið í yfirstandandi framkvæmdum)
Nóvember 2025: Útidyrahurð í þvottahús og hjólageymslu endurnýjuð.
Febrúar 2026: Öllum gluggum skipt út innan íbúðar og sett ný svalahurð.
Mars 2026: Keyptar tvær hleðslustöðvar og fyrirhuguð uppsetning á bílastæðinu er í mars

Einstök staðsetning , Langholtsskóli í tveggja mínútna göngufæri og það þarf ekki að fara yfir götu, fjórir leikskólar í göngufæri,
Álfheimakjarninn sem er með bakaríi, kjörbúð og ísbúð í tveggja mínútna göngufæri og svo Glæsibær í 5 mínútna göngufæri með fjölbreytta þjónustu eins og Nettó, bakarí, líkamsræktarstöð, fjölbreytt tannlækna og læknaþjónusta og apótek. Svo er Laugardalurinn með öllu sínu beint við hliðina á þar sem er m.a. frisbígólfvöllur, grasagarðurinn, fjölskyldu og húsdýragarðurinn og leikvellir víða. Svo er öflugt íþróttastarf í Þrótti og Ármanni í hverfinu.

Álfheimar 26 er fimm hæða fjöleignahús með 15 íbúðum. Húsið er hluti að fjölbýli við Álfheima 26-30 sem eru þrír matshlutar, en alls eru 38 íbúðir í heildar fjölbýlinu. Sameign er öll hin snyrtilegasta og eru þrif á sameign eru inni í húsfélagsgjaldi. Lóðin er í sameign og aðkoman að húsinu er góð, snjóbræðsla er í hellulögn fyrir framan og með fram húsi og garður umhverfis húsið er snyrtilegur og vel hirtur. Næg Bílastæði eru bæði framan við hús og við austurenda hússins.
 

Pálsson Fasteignasala

Pálsson Fasteignasala

Borgartúni 3, 105 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
20. maí. 2021
38.600.000 kr.
47.000.000 kr.
79.5 m²
591.195 kr.
25. sep. 2019
35.050.000 kr.
40.000.000 kr.
79.5 m²
503.145 kr.
1. okt. 2015
21.900.000 kr.
30.900.000 kr.
79.5 m²
388.679 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Pálsson Fasteignasala

Pálsson Fasteignasala

Borgartúni 3, 105 Reykjavík