Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Hafdís Rafnsdóttir
Dórothea E. Jóhannsdóttir
Sigurður Gunnlaugsson
Jón Gunnar Gíslason
Hafliði Halldórsson
Aðalsteinn Bjarnason
Margrét Rós Einarsdóttir
Guðný Ösp Ragnarsdóttir
Elka Guðmundsdóttir
Vista
fjölbýlishús

Mánatún 1

105 Reykjavík

74.900.000 kr.

957.801 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2362494

Fasteignamat

77.150.000 kr.

Brunabótamat

59.690.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2017
svg
78,2 m²
svg
2 herb.
svg
1 baðherb.
svg
1 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Bílastæði
svg
Lyfta
Opið hús: 23. mars 2026 kl. 17:30 til 18:00

Opið hús: Mánatún 1, 105 Reykjavík, Íbúð merkt: 04 04 03. Eignin verður sýnd mánudaginn 23. mars 2026 milli kl. 17:30 og kl. 18:00.

Lýsing

Fasteignasalan TORG kynnir eignina Mánatún 1, 105 Reykjavík, nánar tiltekið eign merkt 04-03, fastanúmer 236-2494 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi. Glæsilega og vel skipulagða 2. herbergja íbúð á 4. hæð með rúmgóðum svölum til suðvesturs með ásamt stæði í bílakjallara.  Heildarstærð íbúðar er 78,2 fm. Íbúðin sjálf er skráð 68.9 m2 og geymslan er 9,3 m2 hjá HMS. Vel staðsett íbúð þar sem stutt er í miðborgina sem og Laugadalinn. 

Vandaðar innréttingar, og þvottaaðstaða eru innan íbúðar. Húsið var byggt árið 2017 og er með 34 íbúðum á 8 hæðum. Það er viðhaldslétt, einangrað að utanverðu og álklætt en inngangssvæði og margir svalir eru með timburklæðningu á veggjum til að auka hlýlega ásýnd. Rúmgóð og snyrtileg sameign sem 

Allar nánari upplýsingar veitir Hafliði Halldórsson lgfs. í síma 767-5555 eða [email protected]

Skipulag eignar: Forstofa, gangur, alrými með eldhúsi, stofu og borðstofu, herbergi, svalir, baðherbergi með þvottaaðstöðu innaf. Í kjallara er geymsla og einkabílastæði 

Nánari lýsing: Innréttingar eru sérsmíðaðar af Brúnás.Harðparket er á gólfum utan baðherbergis/þvottahús.

Forstofa. Rúmgóður fjórfaldur fataskápur 
Alrými með eldhúsi, stofu og borðstofu: Frá stofu er útgengi á svalir til suðvesturs.
Harðparket á gólfi. Innrétting í eldhúsinu er frá Brúnás eik/hvít, ljúflokun er á skúffum. Innfeld uppþvottavél og Ísskápur. Bakaraofn í vinnuhæð. helluborð og veggháfur.
Herbergi: Er mjög bjart og rúmgott með fataskápum yfir heilan vegg. Harðparket. 
Baðherbergi: Góðar innréttingar, Hvítar flísar veggjum og gólfi. Upphengt salerni og sturta með sturtugleri.  Gólfhiti er á baðherbergi en þar er jafnframt handklæðaofn. 
Þvottahús er opið inn af baðherbergi og er mjög rúmgott með góðri innréttingu þar sem vélarnar eru í vinnhæð. Flísar á gólfi og málaðir veggir.
Geymsla er 9,3 fm og er staðsett á læstum geymslugangi í kjallara.

Sérstæði í bílakjallara. 

Sameign: Hjóla- og vagnageymsla. Sameiginlegar svalir eru til norðurs á hverri hæð, og þar er aðgengi að tröppum milli hæða. 
Lóðin er smekklega frágengin og skemmtileg og næg bílastæði kringum húsið


Allar nánari upplýsingar veitir Hafliði Halldórsson lgfs. í síma 767-5555 eða [email protected]

Umhverfið: Krónan og aðrar verslanir/þjónustuaðilar eru steinsnar frá í Borgartúni og Nóatúni.  Auk þess er stutt leið í Laugardalinn með ýmsum möguleikum til útivistar og nærliggjandi kaffihús eru í Borgartúni.


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.

Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
  Nýtt - Eignin er nýbygging.
  Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
  Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
  Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
  Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
 

img
Hafliði Halldórsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Fasteignasalan TORG
Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
Fasteignasalan TORG

Fasteignasalan TORG

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
phone
img

Hafliði Halldórsson

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
12. maí. 2017
4.490.000 kr.
42.900.000 kr.
78.2 m²
548.593 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Fasteignasalan TORG

Fasteignasalan TORG

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
phone

Hafliði Halldórsson

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ