Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sigurður Samúelsson
Andri Sigurðsson
Sveinn Eyland
Ingibjörg Agnes Jónsdóttir
Guðrún Diljá Lúðvíksdóttir
Monika Hjálmtýsdóttir
Júlíus Jóhannsson
Freyja Rúnarsdóttir
Jón Óskar Karlsson
Davíð Matthíasson
Erla Friðriksdóttir
Vista
fjölbýlishús

Rofabær 45

110 Reykjavík

64.900.000 kr.

719.512 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2045276

Fasteignamat

67.600.000 kr.

Brunabótamat

48.150.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1967
svg
90,2 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Sameiginl. inngangur

Lýsing

Jón Óskar Karlsson, löggiltur fasteignasali (s. 693 9258) og LANDMARK fasteignamiðlun kynna til sölu:

Björt og falleg 90,2fm. íbúð við Rofabæ 45, 110 Reykjavík. Um er að ræða þriggja herbergja íbúð á 2. hæð á góðum stað í Árbænum. Íbúðin er rúmgóð og vel skipulögð.

Eignin skiptist í forstofu, stofu/borðstofu, eldhús, 2 svefnherbergi, baðherbergi og geymslu.

Nánari lýsing:
Forstofa: Komið er inn í opið forstofuhol með fatahengi.
Stofa / borðstofa: Rúmgóð, björt og opin stofa sem býður uppá ýmsa möguleika. Úr stofu er útgengt á rúmgóðar suðursvalir.
Eldhús: Rúmgott eldhús með borðkrók, eldhúsið er opið í tvo enda. Innrétting með miklu skúffu- og skápaplássi, flísalagt milli innréttinga. Blástursofn, spanhelluborð, uppþvottavél og ísskápur.
Svefnherbergi I & II: Rúmgott hjónaherbergi með stórum fataskápum ásamt góðu barnaherbergi.
Baðherbergi: Flísar á gólfi og veggjum. Baðkar með sturtu, upphengt salerni og baðinnrétting þar sem gert er ráð fyrir þvottavél.
Geymsla: Á jarðhæð hússins er 4,6fm. geymsla sem tilheyrir íbúðinni.
Sameign: Sameiginlegt þvottahús er á jarðhæð hússins ásamt hjóla- og vagnageymslu.
Garður: Framan við húsið er stór og snyrtilegur garður með skemmtilegum leikvelli fyrir börn ásamt fótbolta- / körfuboltavelli.

Húsið hefur fengið mikla yfirhalningu á síðustu árum:

2017-2018:
- Þak yfirfarið og skipt var um þakjárn og járnrennur.
- Gluggum skipt út á austur- og suðurhlið að undanskildum gluggum sem eru inni á svölum.
- Múrviðgerðir á norður- og vesturhlið hússins ásamt málun.
- Sameiginlegri rafmagnstöflu í Rofabæ 45 skipt út. Settir nýjir dyrasímar ásamt ljósaskynjurum.
- Nýjir póstkassar.
- Hurðum á ruslakompu og hjólageymslu var skipt út.
- Sameiginlegt leik- og útivistarsvæði tekið í gegn, endurnýjaður gróður og leiktæki.

2023-2024
- Svalir rifnar niður og endursteyptar
- Sett upp nýtt svalahandrið með álprófílum og hertu gleri.
- Suðurhlið klædd með áli að undanskildum flötum inni á svölum.
- Svalahurðum skipt út og gluggum sem eru inni á svölunum.

Eignin er vel staðsett og stutt í helstu þjónustu svo sem leikskóla, grunnskóla, matvöruverslanir, íþróttaaðstöðu og fleira.

Allar nánari upplýsingar veitir:
Jón Óskar Karlsson
, löggiltur fasteignasali, í síma 693 9258 eða [email protected]


 

Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.

Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 3.800 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustugjald kaupanda: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.

Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat

img
Jón Óskar Karlsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
LANDMARK fasteignamiðlun
Hlíðasmári 2, 201 Kópavogur
LANDMARK fasteignamiðlun

LANDMARK fasteignamiðlun

Hlíðasmári 2, 201 Kópavogur
phone
img

Jón Óskar Karlsson

Hlíðasmári 2, 201 Kópavogur
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
9. des. 2015
20.050.000 kr.
23.990.000 kr.
90.2 m²
265.965 kr.
3. des. 2013
18.300.000 kr.
18.500.000 kr.
90.2 m²
205.100 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
LANDMARK fasteignamiðlun

LANDMARK fasteignamiðlun

Hlíðasmári 2, 201 Kópavogur
phone

Jón Óskar Karlsson

Hlíðasmári 2, 201 Kópavogur