Lýsing
Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands alls 54,2fm.
Eignin skiptist í: Forstofu, 2 svefnherbergi, stofu, eldhús, baðherbergi, geymsla og rúmgott svefnloft.
Lóðaleigusamningur endurnýjast sjálfkrafa á 5 ára fresti. Lóðaleigan ásamt hitaveitu er um kr. 300.000.- á ári og er það skipt niður í tvær greiðslur á ári.
Nánari lýsing eignarinnar:
Komið er inn í forstofu. Inn af forstofu er geymsla. Úr forstofunni er komið inn í lítinn gang þar sem á vinstri hönd er svefnherbergi. Litlu lengra á ganginum er baðherbergi með sturtu. Við enda gangarins er hjónaherbergið ásamt því að þar er stigi sem liggur upp á svefnloft, þar er pláss fyrir 4-6 að sofa. Úr gangi er gengið inn í bjarta stofu og þaðan í eldhúsið sem er með góðan borðkrók.
Ljósgrátt harðparket er á öllum gólfum nema á baði þar sem er dúkur.
Gengið er út á rúmgóðan pall frá stofu. Heitur pottur er á pallinum og nær í kringum bústaðinn, er því hægt að ná sólinni hvenær sem er dags.
Margskonar afþreyingu er að finna á svæðinu s.s. magnaðar náttúruperlur, margar frábærar gönguleiðir, golfvellir ásamt því að stutt er í þjónustu og sundlaug á Flúðum.
Allar nánari upplýsingar veitir Hallgrímur Hólmsteinsson löggiltur fasteignasali í síma 896-6020 eða á netfanginu [email protected]
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.