Lýsing
Rúmgóður og vel skipulagður sumarbústaður á frábærum stað við Höfðabraut í Vaðnesi, Grímsnesi. Bústaðurinn er umkringdur fallegri náttúru og er í sumarhúsabyggð sem er lokuð með öryggishliði. Um klst. akstur frá Reykjavík og um 15 mín. frá Selfossi. Í nálægu umhverfi eru tveir golfvellir í Öndverðarnesi og Kiðjabergi, sundlaug og margar af helstu náttúruperlum Suðurlands.
Höfðabraut 10 er skráð í heild 106,7fm. - þar af 81,8fm. sumarbústaður og 24,9fm. gestahús. Húsin eru timburhús, full einangruð sem heilsárshús, byggð á steyptum sökklum og með steyptri botnplötu. Eignin er á 7.745fm. eignarlandi.
Aðalhúsið skiptist í forstofu, eldhús með eyju, rúmgóða stofu/borðstofu þaðan sem er útgengt út á verönd, 3 svefnherbergi, baðherbergi og geymslu sem er einnig nýtt sem þvottahús. Gestahúsið skiptist í alrými, baðherbergi og geymslu. Húsin eru hituð með gólfhita.
Bæði húsin eru með steypta plötu utan húshlutanna sem gefa möguleika á því að stækka húsin. Stór verönd og á milli húshlutanna er samfelldur skjólveggur og heitur pottur. Góð aðkoma er að húsinu og stórt bílastæði er aftan við húsið.
Húsið er laust til afhendingar, húsgögn og innbú getur fylgt með eftir nánara samkomulagi.
Allar nánari upplýsingar veitir:
Jón Óskar Karlsson, löggiltur fasteignasali, í síma 693 9258 eða [email protected]
Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.
Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 3.800 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustugjald kaupanda: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.
Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat