Lýsing
Miklaborg kynnir: Álfaskeið 94, 220 Hafnarfirði - 3ja herbergja íbúð á efstu hæð + bílskúr, samtals 109,4 fm - mikið og fallegt ÚTSÝNI.
Íbúðin er laus og því afhending við kaupsamning. Parket og flísar á gólfum Búið að endurnýja eldhús og baðherbergi ásamt gler og gluggum víða sem og leggja nýtt hitakerfi innan íbúðar. Sameiginlegt þvottahús á sömu hæð þar sem hver og einn er með sína vél. Niðri er sameiginleg vagna- og hjólageymsla ásamt sér geymslu.
Opið hús miðvikudaginn 25. mars kl. 17:15-18:00, allir áhugasamir velkomnir.
Nánari lýsing: Sameiginlegur inngangur. Stigahús teppalagt. Sérinngangur af svalagangi þegar upp er komið. Forstofa með fatahengi ásamt lítilli geymslu/búr. Stofa, borðstofa og eldhús saman í opnu rými. Falleg hvít eldhúsinnréting með góðum tækjum. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél fylgja. Tvö rúmgóð svefnherbergi. Baðherbergið er mað walk-inn sturtu ásamt innréttingu. Í heildina góð íbúð með góðu innra skipulagi í rótgrónu hverfi. Stutt í margvíslega þjónustu innan Hafnarfjarðar.
Nánari upplýsingar gefur Gústaf Adolf lgf., [email protected] / 895-7205. Velkomið að panta tíma fyrir skoðun.