Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Auður Sigr Kristinsdóttir
Páll Guðjónsson
Ólafur Tryggvason Thors
Vilborg G. Hansen
Vista
hæð

Laugarbraut 25

300 Akranes

69.900.000 kr.

440.731 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2101803

Fasteignamat

67.200.000 kr.

Brunabótamat

73.730.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1963
svg
158,6 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Útsýni
svg
Sérinngangur

Lýsing

*** AFHENDING VIÐ KAUPSAMNING ***
Fasteignasalan Bær og Páll Guðjónsson lögg. fasteignasali kynna: Efri sérhæð í tvíbýli með sér inngangi við Laugarbraut 25, 300 Akranes. Um er að ræða 135,9 fm íbúð á annarri hæð ásamt tæplega 23 fm bílskúr, staðsett innarlega í botnlangagötu, alls 158,6 fm. Fallegt útsýni úr stofu og eldhúsi til sjávar. Eignin hefur fengið töluvert viðhald og endurnýjun á síðustu árum t.d. var þak yfirfarið og málað sumarið 2024, viðgerð og málun á húsi 2021, skolplagnir endurnýjaðar 2025, baðherbergi endurnýjað o.fl. Um er að ræða vel staðsett hús innarlega í rólegri botnlangagötu. Stutt er í miðbæinn, leik- og grunnskóla ásamt íþróttastarfsemi.


Nánari lýsing:
Komið er inn í flísalagða forstofu með fatahengi. Frá forstofu er teppalagður stigi upp á efri hæð. Stigapallur efri hæðar er flísalagður, þar eru rúmgóðir fataskápar. Búið er að koma upp þvottaaðstöðu með snyrtilegum hætti á stigapalli efri hæðar. Rúmgott eldhús með stórri eldhúsinnréttingu með viðaráferð og ljósgráum borðplötum. Rúmgóð samliggjandi stofa / borðstofa með útgengi út á svalir. Baðherbergi var endurnýjað 2018 er með dökkri innréttingu, walk inn sturta með dökkum flísum, upphengt salerni, handklæðaofn og ljósar flísar á gólfi, stór gluggi með opnanlegu fagi. Á svefnherbergisgangi er harðparket á gólfi, 3 rúmgóð herbergi með skápum. Í kjallara er sér inngangur í sér geymslu eignar. Tæplega 23 fm bílskúr (holsteinn) með nýlegri hurð og fjarstýrðum hurðaropnara. Á gólfum eignar er harðparket á stofu / borðstofu, herbergisgangi og herbergjum en flísar á forstofu, stigapalli, eldhúsi og baðherbergi.
Um er að ræða rúmgóða sér hæð í rólegu umhverfi með helstu þjónustu í næsta nágrenni.

Nánari upplýsingar gefur Páll Guðjónsson lögg. fasteignasali í síma 699 4994 eða á netfangi [email protected]
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 1,0% af höfuðstól skuldabréfs.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.


 

img
Páll Guðjónsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Fasteignasalan Bær
Skútuvogur 10F, 104 Reykjavík
Fasteignasalan Bær

Fasteignasalan Bær

Skútuvogur 10F, 104 Reykjavík
img

Páll Guðjónsson

Skútuvogur 10F, 104 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
30. apr. 2024
60.900.000 kr.
62.500.000 kr.
158.6 m²
394.073 kr.
29. ágú. 2022
41.650.000 kr.
57.000.000 kr.
158.6 m²
359.395 kr.
2. apr. 2016
21.350.000 kr.
22.000.000 kr.
158.6 m²
138.714 kr.
10. apr. 2014
19.000.000 kr.
15.700.000 kr.
158.6 m²
98.991 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Fasteignasalan Bær

Fasteignasalan Bær

Skútuvogur 10F, 104 Reykjavík

Páll Guðjónsson

Skútuvogur 10F, 104 Reykjavík