Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Hannes Steindórsson
Bogi Molby Pétursson
Guðrún Antonsdóttir
Heimir Hallgrímsson
Hrafnkell P. H. Pálmason
Viðar Marinósson
Elías Haraldsson
Kristján Þórir Hauksson
Albert Bjarni Úlfarsson
Ragnar Þorsteinsson
Þórey Ólafsdóttir
Andri Freyr Halldórsson
Vista
fjölbýlishús

Barmahlíð 26

105 Reykjavík

99.500.000 kr.

845.370 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2030082

Fasteignamat

92.000.000 kr.

Brunabótamat

66.400.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1947
svg
117,7 m²
svg
5 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur
Opið hús: 29. mars 2026 kl. 13:00 til 13:20

Opið hús að Barmahlíð 26 (íbúð 201) klukkann 13:00 á sunnudaginn.

Lýsing

LIND fasteignasala og Þórey Ólafsdóttir kynna í einkasölu einstaklega bjarta og vel skipulagða 4-5 herbergja efri sérhæð við Barmahlíð 26 í Reykjavík. Eignin er staðsett í rótgrónu og vinsælu hverfi þar sem stutt er í skóla, leikskóla og alla helstu þjónustu. Um er að ræða sérlega glæsilegt hús teiknað af Sigvalda Thordarsyni og Gísla Halldórssyni með fallegum og vönduðum arkitektúr. Bjartar og rúmgóðar samliggjandi stofur með frönskum gluggum, suðursvalir með steyptu blómakari og skjólsæll suðurgarður. Eignin hefur verið mikið endurnýjuð að innan, þar á meðal með vönduðu fiskibeinaparketi úr eik sem gefur íbúðinni hlýlegt og vandað yfirbragð. Utanhússframkvæmdir eru í fullum gangi – greiddar af seljendum.

Íbúðin er skráð 117,7 fm og skiptist í tvær rúmgóðar samliggjandi stofur, tvö svefnherbergi, sjónvarpshol (mögulegt þriðja herbergi), eldhús og baðherbergi. 

Allar frekari upplýsingar í síma 663 2300 eða [email protected]

Nánari lýsing:
 
Forstofa með fatahengi og parketi á gólfi.
Tvær rúmgóðar og bjartar samliggjandi stofur með parketi á gólfi og útgengi á suðursvalir, einkar falleg steypt blómakar á svölum sem er hluti af upprunalegri hönnun hússins.
Eldhús með hvítri innréttingu, viðarborðplötu og björtum borðkrók, parket á gólfi.
Hjónaherbergi með innbyggðum fataskáp, parketi á gólfi og útgengi á svalir.
Barnaherbergi með innbyggðum fataskáp, parket á gólfi.
Sjónvarpshol (mögulegt þriðja svefnherbergi), parket á gólfi.
Baðherbergi með glugga, flísalagt að hluta með upphengdu salerni, vaskinnréttingu og baðkari.
Sérgeymsla í kjallara (4,4 fm), innaf þvottahúsi.
Sameiginlegt þvottahús í kjallara með glugga, nýlega endurbætt.

Suðurgarður, skjólsæll og sólríkur, einstaklega fallega hannaður og gróinn með fallegum blómabeðum sem gefa garðinum hlýlegt yfirbragð. Garðurinn er sannkallaður sælureitur yfir sumartímann. Þar er einnig rúmgóður skúr sem nýtist vel til geymslu á hjólum, garðáhöldum eða öðru tilfallandi. Samkvæmt þinglýstri skiptayfirlýsingu fylgir bílskúrsréttur eigninni.

Eignin hefur verið mikið endurnýjuð að innan á undanförnum árum. Gólf hafa verið flotuð og lagt hefur verið vandað eikar fiskibeinaparket á alla íbúðina ásamt nýjum gólflistum. Íbúðin hefur verið máluð í áföngum og loftlistar endurbættir í upprunalegum stíl sem gefur íbúðinni einstakt yfirbragð. Eldhús og herbergi hafa verið uppfærð. Rafmagn hefur verið endurbætt að hluta með fjölgun tengla og lagfæringum á lögnum. Gluggar hafa verið yfirfarnir, gler endurnýjað að hluta, gluggar í eldhúsi, hjónaherbergi, barnaherbergi og sjónvarpsholi hafa auk þess verið lagfærðir og lakkaði

Barmahlíð 26 hefur fengið gott og reglulegt viðhald á undanförnum árum og hefur m.a. þak verið endurnýjað og útitröppur endurbættar. Garðurinn er einstaklega fallegur, mjög gróinn, skjólsæll og vel hirtur. Stétt meðfram vesturhlið hússins hefur verið endurgerð, en lóðin hefur að öðru leyti haldið sínum upprunalega og sjarmerandi svip. Nú standa yfir umfangsmiklar utanhússframkvæmdir á húsinu, þar á meðal múrviðgerðir, steining og viðgerðir á gluggum, auk viðhalds á þaki á hinum hluta hússins.Framkvæmdirnar miða að því að viðhalda og styrkja upprunalegt útlit hússins en valinn hefur verið steiningarlitur sem fellur vel að upprunalegri ásýnd þess. Seljendur greiða fyrir samþykktar yfirstandandi framkvæmdir.

Nánari upplýsingar veitir Þórey Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali / B.Sc. í viðskiptafræði í síma 663 2300 eða gegnum [email protected]
 

Á heimasíðunni minni www.thorey.is má skoða umsagnir ánægðra viðskiptavina og kynna sér þjónustuna mína.

Allir kaupendur okkar fá Vildarkort Lindar. Með því að framvísa kortinu færð þú 30% afslátt hjá samstarfsaðilum: Húsgagnahöllin, S. Helgason, Flugger litir, Húsasmiðjan, Z brautir og gluggatjöld, Vídd, Parki, Betra bak, Dorma og Sýn.
 

img
Þórey Ólafsdóttir
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Lind fasteignasala ehf.
Bæjarlind 4, 201 Kópavogur
Lind fasteignasala ehf.

Lind fasteignasala ehf.

Bæjarlind 4, 201 Kópavogur
phone
img

Þórey Ólafsdóttir

Bæjarlind 4, 201 Kópavogur
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
30. jún. 2017
42.400.000 kr.
57.000.000 kr.
117.7 m²
484.282 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Lind fasteignasala ehf.

Lind fasteignasala ehf.

Bæjarlind 4, 201 Kópavogur
phone

Þórey Ólafsdóttir

Bæjarlind 4, 201 Kópavogur