Lýsing
Einstaklega fallegt og vel viðhaldið einbýlishús á fallegri 926 fm lóð í mikill rækt á eftirsóttum stað í Kópavoginum. Húsið hefur verið endurnýjað að mestu og fékk það viðurkenningu frá Kópavogsbæ árið 2004 fyrir vel heppnaða endurgerð. Birt stærð skv. HMS: Neðri hæðin er 79,9 fm, efri hæðin er 68,6 fm ásamt 73,9 fm bílskúr, samtals: 222,4 fm. Þess ber að geta að efri hæðin er undir súð og því er gólfflöturinn stærri en skráðir fm. Gólfhiti er í holi og í eldhúsi annars er ofnakerfi í húsinu. Húsið hefur fengið mjög gott viðhald í gegnum tíðina, fallegur timburpallur bakatil með heitum potti. Nýbúið var að endurnýja þakið að sunnanverðu þegar seljendur keyptu eignina og þau létu endurnýja þakið að norðanverður fyrir um tveimur árum síðan. Nýtt þak sett á bílskúr í kringum 2010 – lofthæð hækkuð um ca. 1,5 m. Mjög stórt bílaplan með hita - fimm svefnherbergi eru í húsinu. Möguleiki að breyta bískúrnum í íbúð.
Nánari lýsing eignar: Komið er inn í forstofu neðri hæðar, fatahengi. Frá forstofu tekur við gangur / hol með flísum á gólfi. Snyrtig á neðri hæðinni með glugga. Á vinstri hönd er stofa og borðstofa. Svefnherbergi á neðri hæðinni sem er nýtt í dag sem skrifstofa. Eldhúsið er mjög stórt með hvítri snyrtilegri innréttingu, gashelluborð og rafmagnsofn, gluggar á þrjá vegu, borðkrókur. Innaf eldhúsinu er hol með flísum, frá þessu rými er unnt að ganga út á pallinn bakatil. Flísalagt baðherbergi með sturtu og glugga á tvo vegu. Á baðherbergi er tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Innangengt í bílskúrinn þar sem komið er inn í opið rými og tvær geymslur innaf. Innst í bílskúrnum er saunaherbergi þar sem unnt er að ganga út á timburpallinn. Nýr glerfrontur með tvöfaldri opnun er á bílskúr Í bílskúrnum er einnig tengi fyrir þvottavél. Frá holi / gangi neðri hæðar er gengið upp stiga upp á efri hæðina. Parketlagður gangur en þar eru fjögur svefnherbergi og frá hjónaherbergi er gengið út á svalir. Baðherbergi með glugga, hvít innréttingu, baðkar og handklæðaofn. Gólfefni: parket, flísar að mestu á gólfum fyrir utan stigan upp á efri hæðina en þar er kókosteppi.
UM ER AÐ RÆÐA MJÖG FALLEGT OG VEL SKIPULAGT EINBÝLISHÚS Á EFTIRSÓTTUM STAÐ Í KÓPAVOGINUM ÞAR SEM STUTT ER Í SMÁRALINDINA, GRUNNSKÓLA, MENNTASKÓLANN Í KÓPAVOGI OG ALLA HELSTU ÞJÓNUSTU.
Allar nánari upplýsingar veitir og bókun á skoðunartíma: Andri Sigurðsson Löggiltur fasteignasali í síma 690 3111 eða [email protected]
Umsagnir viðskiptavina HÉR
Fylgdu mér á Facebook
Fylgdu mér á Instagram
Pantaðu FRÍTT söluverðmat á www.frittsoluverdmat.is
Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.
Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 3.800 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustugjald kaupanda: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.
Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat