Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Kristján Baldursson
Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir
Sólveig Regína Biard
Kristín María Stefánsdóttir
Viktoría Rannveig Larsen
Aðalsteinn Jón Bergdal
Hallgrímur Óli Hólmsteinsson
Vista
fjölbýlishús

Akraland 1

108 Reykjavík

89.900.000 kr.

750.417 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2036474

Fasteignamat

88.400.000 kr.

Brunabótamat

58.450.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1983
svg
119,8 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Laus strax

Lýsing

Rúmgóð og björt 3ja herbergja íbúð á 2. hæð (efstu hæð) í 6 íbúða fjölbýlishúsi auk bílskúrs við Akraland 1 í Fossvogi. Sér þvottahús er innan íbúðar. Bílskúr í mjög góðu ástandi með glugga og millilofti. Sú kvöð er á eigninni að hana má aðeins selja þeim sem eru orðnir 50 ára eða eldri. Eignin er laus við kaupsamning.

Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands alls 119,8 fm. og þar af er bílskúr 30 fm. Geymsla íbúðar er ekki inn í fermetratölu eignarinnar. 

Skipting eignar:  Anddyri, tvö svefnherbergi, stofa, eldhús, þvottahús, svalir, geymsla og bílskúr.

Nánari lýsing:
Gengið er inn í íbúðina af svölum.
Forstofa
með fataskáp og flísum á gólfi.
Svefnherbergi inn af anddyri með góðu skápaplássi og ná skápar upp í loft og parket á gólfi.
Stofa rúmgóð og björt með parketi á gólfi. Útgengt er út á góðar svalir úr stofunni. 
Eldhús rúmgott með upprunalegri og mjög snyrtilegri innréttingu, nýr ofn, nýtt helluborð, nýr gufugleypir, ný uppþvottavél, eldhúskrókur og flísar á gólfi. 
Hjónaherbergi rúmgott með góðu skápaplássi og parket á gólfi. 
Baðherbergi rúmgott með sturtuklefa, snyrtilegri innréttingu og flísalagt í hólf og gólf. 
Þvottahús er innan íbúðar með glugga, hillur og flísar á gólfi. 
Geymsla íbúðar ca. 5 fm.er í kjallara hússins og er ekki skráð inn í fermetratölu íbúðarinnar. 
Bílskúr eignarinnar er í bílskúrslengju, skráður 30 fm. auk millilofts og bílskúrshurðaopnara. Einnig er hurð á bílskúrhurð, gluggar og opnanlegt fag, snyrtileg innrétting og gólf nýlega lakkað.

Skipt var um þak og þakkant 2020
Gluggar voru málaðir að utan 2025


Sameiginlegur inngangur er í húsið og er sameignin öll mjög snyrtileg, stigagangur var málaður og skipt um dúk 2020.
Fallegur og vel til hafður garður. Göngustígar steyptir og bílastæði malbikuð.  

Staðsetning eignar er mjög góð og er stutt í alla almenna þjónustu.  Falleg og snyrtileg eign á mjög eftirsóttu svæði. Eignin er mikið til upprunaleg en lýtur vel út og er mjög vel með farin.

Allar nánari upplýsingar veitir Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir löggiltur fasteigansali í síma 899-5949 eða á netfanginu [email protected]

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

img
Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Trausti fasteignasala
Vegmúla 4, 108 Reykjavík
Trausti fasteignasala

Trausti fasteignasala

Vegmúla 4, 108 Reykjavík
phone
img

Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir

Vegmúla 4, 108 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
14. ágú. 2017
37.800.000 kr.
22.500.000 kr.
119.8 m²
187.813 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Trausti fasteignasala

Trausti fasteignasala

Vegmúla 4, 108 Reykjavík
phone

Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir

Vegmúla 4, 108 Reykjavík