Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Páll Heiðar Pálsson
Helen Sigurðardóttir
Hrafnkell Pálmarsson
Ingibjörg Reynisdóttir
Vista
hæð

Fossahvarf 11

203 Kópavogur

104.900.000 kr.

815.708 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2303549

Fasteignamat

101.050.000 kr.

Brunabótamat

64.700.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2008
svg
128,6 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sérinngangur
Opið hús: 30. mars 2026 kl. 17:00 til 17:30

Opið hús: Fossahvarf 11, 203 Kópavogur. Eignin verður sýnd mánudaginn 30. mars 2026 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.

Lýsing

Pálsson Fasteignasala kynnir:

-Stór timburverönd í suður
-Sérinngangur á jarðhæð
-Sér bílastæði
-Stutt í skóla


Íbúðin er 128,6 fm samkvæmt HMS.
Vel skipulögð fjögurra herbergja íbúð á sérhæð með sérinngangi í steinuðu tvíbýli / keðjuhúsi í Vatnsendahverfi. 
Flæðandi parket er í íbúðinni en baðherbergi, forstofa og þvottahús eru flísalögð.
Stór afgirt timburverönd með góðri útigeymslu, útgengt úr borðstofu.
Fallegt útsýni er af pallinum yfir Elliðavatn og upp til Bláfjalla og að Hellisheiði.
Vatnsendaskóli er rétt handan við pallinn og stutt er í matvöruverslun, heilsurækt, bakarí, golfhermi og aðra þjónustu í Ögurhvarfi.

Góð eign á góðum stað í góðu hverfi sem vert er að gefa góðan gaum.

Nánari upplýsingar veita:
Páll Pálsson Lgf. í S:775-4000 eða [email protected]
Ævar Jóhanns Lgf. s: 861-8827 eða [email protected]


Nánari lýsing:

Gengið er inn í flísalagða forstofu með stórum hvítum loftháum fataskáp.
Svefnherbergi er inn af forstofu, parketlagt með viðarlituðum loftháum fataskáp.
Annað svefnherbergi er á vinstri hönd. Það er einnig parketlagt með viðarlituðum fataskáp.
Hjónaherbergið er rúmgott og parketlagt með stórum fataskáp.
Á gangi er baðherbergi, þvottahús og geymsla.
Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf, gólfhiti, útbúið baðkari og nýlegum sturtuklefa. Nýleg viðarlituð vaskinnrétting með góðu skúffu og skápaplássi og lýsingu yfir spegli. Upphengt salerni og handklæðaofn.
Þvottahús er flísalagt með tengi fyrir þvottavél og þurrkara og veggföstum hillum.
Í eldhúsinu er gott skápapláss þar sem neðri skápar og skúffur mynda U og efri skápar eru loftháir. Bakaraofn er í vinnuhæð og háfur yfir helluborði. Borðplata nær framyfir skápa og nýtist sem barborð.
Eldhús, borðstofa og stofa flæða saman í einu stóru alrými.
Borðstofa er björt með hornglugga og útgengt út á stóra sólríka og afgirta timburverönd sem snýr í suðurátt.
Stofa er rúmgóð og parketlögð.
Geymslupláss í eigninni er gott. Geymsla innan íbúðar, geymsla á móti íbúðinni og að auki útigeymsla á pallinum.
Með eigninni fylgir glæný tesla hleðslustöð eigninni og upphitað bílastæði (tvö sér stæði fylgja og annað þeirra er upphitað)

www.eignavakt.is
www.verdmat.is 
Góð ráð fyrir kaupendur / seljendur

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Pálsson Fasteignasala

Pálsson Fasteignasala

Borgartúni 3, 105 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
16. jún. 2020
53.050.000 kr.
63.700.000 kr.
128.6 m²
495.334 kr.
8. maí. 2013
25.200.000 kr.
32.500.000 kr.
128.6 m²
252.722 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Pálsson Fasteignasala

Pálsson Fasteignasala

Borgartúni 3, 105 Reykjavík