Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Óskar Sigurðsson
Þorsteinn Magnússon
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2018
svg
193,6 m²
svg
5 herb.
svg
2 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur

Lýsing

ÁRBORGIR SELFOSSI S 482 4800 kynna í einkasölu:
Um er að ræða mjög vandað og vel skipulagt einbýlishús á góðum stað í Laxalæk á Selfossi.
Húsið er timburhús, klætt að utan með lituðu járni, litað járn er á þaki, gluggar eru úr ál/tré.
Húsið er alls 193,6m2 að stærð og er sambyggður bílskúr 35,8m2 þar af. Lóðin er 779,5m2 að stærð, eignarlóð.
Að innan skiptist húsið í forstofu, þvottahús, 2 baðherbergi, sjónvarpshol, fjögur svefnherbergi, stofu og eldhús auk bílskúrs.
Eignin er mjög vel innréttuð og vönduð, dúkar eru í loftum, steinn er á borðum á eldhúsinnréttingu og á baði og tæki af vönduðum gerðum.
Nánari lýsing:
Forstofa er flísalögð. 
Þvottahús er innaf forstofu, flísar eru á gólfi og þar er góð innrétting.
Svefnherbergin eru 4, parket er á gólfi og eru skápar í þrem þeirra.
Minna baðherbergið er flíslagt bæði gólf og veggir en þar er lítil innrétting og gólfsturta.
Stærra baðherbergið er er flísalagt bæði gólf og veggir en þar er góð innrétting, gólfsturta og hurð út á sólpall.
Parket er á gólfi í sjónvarpsholi.
Stofan er parketlögð og þar er rennihurð út á sólpall.
Eldhúsið er parketlagt og þar er stór innrétting með eyju og í eldhúsi er rennihurð útá sólpall.
Bílskúr er klæddur og málaður, Epoxy er á gólfi og í enda hans er gott geymsluloft.
Steypt stétt er meðframhúsinu og er lóðin öll afgirt. Stór sólpallur með geymsluskúr og heitum potti er við suðurhlið hússins.
Innkeyrsla er steypt og með snjóbræðslu.
Lóðin er gróin og falleg. 
Í heildina er um að ræða vandað og vel skipulagt einbýlishús á góðum stað á Selfossi.
Nánari upplýsingar og bókið skoðun á skrifstofu Árborga.

Árborgir fasteignasala

Árborgir fasteignasala

Austurvegi 6, 800 Selfossi.
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
29. jan. 2018
5.660.000 kr.
23.000.000 kr.
193.6 m²
118.802 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Árborgir fasteignasala

Árborgir fasteignasala

Austurvegi 6, 800 Selfossi.
phone