Lýsing
Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Fallegt og vel skipulagt sumarhús á 4.332 m2 EIGNARLÓÐ við Norðurnes 12 í Kjós. Aðeins er um 30 mínútna akstur frá höfðuðborgarsvæðinu. Eignin er skráð 75,1 m2 en þar að auki er geymsluskúr við hlið sumarhússins ca. 5-6 m2. Eignin skiptist í forstofu, baðherbergi, stofu, eldhús, hol og þrjú svefnherbergi. Heitt vatn er í húsinu og gólfhiti í öllum rýmum. Timburverönd er við húsið með heitum potti og geymsluskúr. Sumarhúsið tilheyrir sumarbústaðafélaginu Norðurnesi í landi Möðruvalla í Kjós og hafa eigendur aðgang að lokuðu símahliði inn á svæðið. Fallegt útsýni og stutt í gönguleiðir í nágrenninu. Hluti innbús getur fylgt með í kaupunum, m.a. hjónarúm, koja, kertaarinn, sófi, sófaborð, þvottavél, ísskápur, uppþvottavél, slátturvél og slátturorf.
** Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent **
Nánari lýsing:
Forstofa með plastparketi á gólfi.
Baðherbergi er inn af forstofu með parketi á gólfi, sturtuklefa, salerni, handlaug og þvottavél sem fylgir með í kaupunum.
Stofa er opin og björt með parketi á gólfi. Útgengt er á timburverönd úr stofu. Í stofu er kertaarinn og fallegt útsýni til norðurs.
Eldhús er inn af stofu með parketi á gólfi og L-laga innréttingu með bakaraofni, helluborði, háfi, borðuppþvottavél og ísskáp. Ísskápur og uppþvottavél fylgja með í kaupum.
Hol er með parketi á gólfi og fataskáp/ræstiskáp. Útgengt er á timburverönd úr holi.
Svefnherbergi 1 (hjónaherbergi) er mjög rúmgott með parketi á gólfi og fataskáp.
Svefnherbergi 2 er með parketi á gólfi.
Svefnherbergi 3 er með parketi á gólfi.
Gólfhiti er í öllum rýmum.
Geymsluskúr stendur á timburverönd við húsið, ca. 5-6 m2. Á verönd er einnig heitur pottur.
Gott kalt geymslurými er undir hluta af timburverönd.
Rekstrarkostnaður, helstu tölur: Fasteignagjöld eru ca. 180 þkr fyrir 2026. Brunatrygging: 54 þkr á ári. Sumarhúsafélagið Norðurnes: 90 þkr fyrir árið nú en er annars ákveðið á aðalfundi hvers árs. Heitt vatn og rafmagn: ca. 32 þkr á mánuði (fer eftir notkun).
Grenndarstöð er við vegamót Meðalfellsvegar. Rotþró er tæmd á annað hvert ár.
Verð kr. 49.900.000
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.