Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Víðir Arnar Kristjánsson
Árni Helgason
Vilborg Gunnarsdóttir
Ingunn Björg Sigurjónsdóttir
Vera Sigurðardóttir
Sjöfn Hilmarsdóttir
Vala Georgsdóttir
Vista
fjölbýlishús

Eyravegur 34a

800 Selfoss

39.900.000 kr.

859.914 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2516100

Fasteignamat

37.550.000 kr.

Brunabótamat

32.850.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2024
svg
46,4 m²
svg
2 herb.
svg
1 baðherb.
svg
1 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sérinngangur
Opið hús: 28. mars 2026 kl. 11:00 til 11:30

Opið hús: Eyravegur 34a, 800 Selfoss, Íbúð merkt: 01 01 02. Eignin verður sýnd laugardaginn 28. mars 2026 milli kl. 11:00 og kl. 11:30.

Lýsing

Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali og Domusnova fasteignasala kynna:

Fallega tveggja herbergja íbúð á jarðhæð með sérinngangi og sérafnotareit út af stofu á Selfossi.

** BÓKIÐ SKOÐUN **
Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali / s. 899 0720 / [email protected]

Nánari lýsing:
Húsið er byggt 2024 og samanstendur íbúðin af forstofu með fataskáp, rúmgóðu baðherbergi með innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð, þröskuldarlausri sturtu, upphengdu wc og innréttingu með handlaug. Flísar eru á gólfi og hluta veggja. Mjög rúmgott svefnherbergi með stórum fataskáp á heilum vegg. Eldhúsið er á gagnstæðum veggjum, efri og neðri hirslur með góðu vinnuplássi, helluborði og viftu, bakaraofni í vinnuhæð og innbyggðri uppþvottavél. Öll tækin eru frá Ormsson og pláss er fyrir einfaldan ísskáp í innréttingu. Stofa/borðstofa er opin við eldhúsið og útgent úr alrými út á sérafnotareit sem fylgir íbúðinni. Parket er á íbúðinni utan votrýma. Aðgengi að sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu á sameign. 

Virkilega falleg íbúð, vel staðsett á Selfossi, öll helsta þjónusta í göngufæri, s.s. miðbær, leik-, grunn- og framhaldsskóli, íþróttaiðkun, sund og allt það sem gott þéttbýli getur boðið uppá.

Pöntun á skoðun og nánari upplýsingar:
Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali
Sími: 899 0720
Netfang: [email protected]


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.


 

Domusnova fasteignasala

Domusnova fasteignasala

Hlíðasmári 4, 2. hæð, 201 Kópavogur
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
10. júl. 2024
32.350.000 kr.
38.000.000 kr.
10102 m²
3.762 kr.
5. júl. 2022
1.400.000 kr.
38.900.000 kr.
46.4 m²
838.362 kr.
12. maí. 2022
1.400.000 kr.
30.500.000 kr.
46.4 m²
657.328 kr.
7. jan. 2022
1.400.000 kr.
650.000.000 kr.
3322.3 m²
195.648 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Domusnova fasteignasala

Domusnova fasteignasala

Hlíðasmári 4, 2. hæð, 201 Kópavogur
phone