Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Páll Þorbjörnsson
Kristinn Sigurbjörnsson
Haukur Andreasson
Elín Frímannsdóttir
Sigurjón Rúnarsson
Vista
raðhús

Huldudalur 31

260 Reykjanesbær

99.900.000 kr.

634.286 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2535480

Fasteignamat

61.050.000 kr.

Brunabótamat

0 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 2025
svg
157,5 m²
svg
5 herb.
svg
2 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur

Lýsing

Smelltu hér Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – Fáðu tilboð í söluferlið -  Skráðu eignina þína í dag og tryggðu þér forskotið.

*

ALLT fasteignasala kynnir eignina Huldudalur 31 .Fallegt og vel skipulagt 157,5 fm einnar hæðar raðhús með bílskúr.

Við Huldudal 31 í Reykjanesbæ stendur til sölu glæsilegt og vandað 5 herbergja endaraðhús á einni hæð. Heildarstærð eignarinnar er 157,5 fm, þar af er íbúðarhlutinn 135,8 fm og bílskúr 21,7 fm.

Nánari upplýsingar veitir/veita:
Páll Þorbjörnsson Löggiltur fasteignasali,  í síma 560-5501 tölvupóstur [email protected].
Sigurjón Rúnarsson, Löggiltur fasteignasali, í síma 560-5524, tölvupóstur [email protected]

Eignin afhendist fullbúin að utan sem innan, utan gólfefna. Lóðin er afhent grófjöfnuð. Nánari upplýsingar um skil koma fram í skilalýsingu seljanda.

Afhending: Við kaupsamning.

Skipulag eignar samkvæmt teikningum
Eignin er einstaklega vel hönnuð og skiptist í eftirfarandi rými:
Forstofa og bílskúr

Anddyri með góðum skápum.
Innangengt er þaðan í rúmgóðan bílskúr (21,7 fm).
Gestasnyrting staðsett við forstofu.

Þvottahús
Þvottahús með vaski og aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara.
Útgengi úr þvottahúsi á lóð er samkvæmt teikningu.

Svefnherbergi
Alls fjögur svefnherbergi, öll með skápum.
Hjónaherbergi rúmgott með mikið skápaplássi.

Alrými – stofa, borðstofa og eldhús
Bjart og opið alrými þar sem stofa, borðstofa og eldhús mynda skipulega heild.
Eldhús með góðum innréttingum, eyju og ríkulegu skápaplássi.
Rennihurð úr alrýminu leiðir út á skjólgóða verönd.

Baðherbergi
Baðherbergi með walk‑in sturtu og útgengi á verönd samkvæmt teikningu.
Gott skápapláss og nútímaleg hönnun í rými.


Frágangur og byggingarefni
Húsið er hannað með gólfhita í öllum rýmum. Staðsteypt hús með ytri einangrun og klæðningu úr báru‑áli. Gluggar og hurðir eru ál/tré kerfi. Sett er tvöfalt einangrunargler (K‑gler). Utanáliggjandi útiljós fylgja samkvæmt skilalýsingu. Steyptur stoðveggur milli lóða fylgir ómeðhöndlaður. Innréttingar eru frá AXIS. Flísar eru frá Parka. Blöndunartæki frá Grohe.

Allar nánari upplýsingar um skil má finna í skilalýsingu seljanda.

Fullkomið fjölskylduhús í vandaðri og nútímalegri byggingu
Um er að ræða vandaða og rúmgóða fjölskyldueign með vel nýttum fermetrum, hágæða efnisvali og góðu skipulagi. Björt rými, fjögur svefnherbergi og stórt alrými gera húsið einstaklega skemmtilegt heimili.
Myndir eru úr Huldudal 33.

Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – skráðu eignina þín í dag og tryggðu þér forskotið.

ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:
Hafnargötu 62, 230 Reykjanesbæ - Reykjavíkurveg 66, 220 Hafnarfirði
 
Kostnaður kaupanda:
1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 3.800.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.

Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
 

Smelltu hér Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – Fáðu tilboð í söluferlið -  Skráðu eignina þína í dag og tryggðu þér forskotið.

ALLT fasteignasala – Reykjanesbær & Hafnarfjörður

ALLT fasteignasala – Reykjanesbær & Hafnarfjörður

phone
ALLT fasteignasala – Reykjanesbær & Hafnarfjörður

ALLT fasteignasala – Reykjanesbær & Hafnarfjörður

phone