Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 2007
270,4 m²
5 herb.
3 baðherb.
4 svefnh.
Þvottahús
Bílskúr
Lýsing
Eignamiðlun kynnir:
Glæsilegt 270 fm einbýlishús á góðum stað í Akrahverfinu. Bjartar stofur með aukinni lofthæð (3,6m) og glæsilegum gasarni, sérsmíðað eldhús frá Heggi og fallegur garður með nýlegum pöllum, skjólveggjum og heitum potti. Falleg 18,5 fm garðstofa með lokun og hita undir hellum sem ekki er hluti af skráðum fermetrum eignar. Vegleg hjónasvíta með fataherbergi og baðherbergi. Að auki eru þrjú rúmgóð barnaherbergi og tvö baðherbergi. Gólfhiti er í öllu húsinu og vel hefur verið hugað að hljóðvist. Húsið er allt á einni hæð og innangengt er í bílskúr.Eignin er skráð 270,4 fm og skiptist í eldhús, stofur, fjögur svefnherbergi, sjónvarpshol, þrjú baðherbergi, þvottahús, geymslu og bílskúr.
Bókið einkaskoðun:
Kjartan: 824-9093 eða [email protected]
Lilja: 649-3868 eða [email protected]
**Sækja söluyfirlit**
Nánari lýsing:
Forstofa: Mjög björt forstofa með flísum á gólfi og sérsmíðaðir skápar frá Heggi.
Eldhús: Afar vönduð svartbæsuð eikarinnrétting sem sérsmíðuð er af Heggi. Mikil og vegleg eyja með fallegum stein á borði og helluborði. Tvöfaldur ofn í vinnuhæð og innbyggð uppþvottavél. Mikið skápapláss er í eldhúsi.
Stofur: Bjartar og mjög rúmgóðar með mikilli lofthæð (3,6m) og gólfsíðum gluggum. Fallegt hnotuparket er á gólfi. Veglegur gasarinn setur svip sinn á rýmið en arinveggurinn er allur klæddur náttúrustreini frá Fígaró. Vel er hugað að hlóðvist í rýminu. Útgengi er frá stofu út í 18,5 fm garðstofu með svalalokun og hita undir hellum. Þetta rými er ekki hluti af skráðum fermetrum eignar. Þaðan er svo útgengi út í fallegan garð með nýlegum lerkiskjólveggjum, pöllum og heitum potti.
Sjónvarpshol: Ágætt sjónvarpshol er stúkað af við svefnherbergisgang.
Hjónasvíta: Hjónasvítan er rúmgóð (um 30 fm) með fataherbergi og baðherbergi. Baðherbergi er flísalagt með upphengdu salerni, innréttingu og walk-in sturtu.
Barnaherbergi (3): Öll barnaherbergin eru mjög rúmgóð og björt með stórum gluggum og hnotuparketi á gólfi. Tvö þeirra eru staðsett á svefnherbergisgangi. Eitt er staðsett inn af forstofu.
Baðherbergi: Staðsett á svefnherbergisgangi. Flísalagt í hólf og gólf með upphengdu salerni, innréttingu, baðkari og walk in sturtu. Góður opnanlegur gluggi.
Baðherbergi: Staðsett á gangi nálægt forstofu. Flísalagt í hólf og gólf með upphengdu salerni, innréttingu og walk in sturtu.
Þvottahús:Rúmgott með góðri innréttingu og flísum á gólfi. Innangengt er úr þvottahúsi í geymslu og bílskúr.
Geymsla: Rúmgóð með góðum skápum og aukainngangi.
Bílskúr: Mjög góður 39 fm bílskúr með flísum á gólfi og rafknúinni bílskúrshurð. Innangengt er í bílskúr.
Lóð: Lóðin er glæsileg og fullfrágengin. Fallegur garður með nýlegum lerkiskjólveggjum, pöllum og heitum potti. Bílaplan er hellulagt með snjóbræðslukerfi. Stæði fyrir allt að fjóra bíla á bílaplani.
Frábær eign á góðum stað í þessu vinsæla hverfi í Garðabæ. Stutt er í alla þjónustu, skóla og frístundir.
Nánari upplýsingar veita:
Kjartan Hallgeirsson - Löggiltur fasteignasali í síma 824-9093 eða [email protected]
Lilja Guðmundsdóttir - Löggiltur fasteignasali í síma 649-3868 eða [email protected]
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
21. okt. 2015
82.750.000 kr.
88.500.000 kr.
270.4 m²
327.293 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026