Opið hús: Grundarland 19, 800 Selfoss. Eignin verður sýnd mánudaginn 30. mars 2026 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.
Lýsing
Um er að ræða nýlegt 4-5 herbergja endaraðhús með innbyggðum bílskúr þar sem búið er að útbúa rúmgott herbergi með baðherbergi inn af í nýlegu hverfi á Selfossi. Tvö baðhergergi og möguleiki á leigutekjum.
Húsið er á einni hæð, byggt úr timbri árið 2020, klætt að utan með bárujárni. Húsið skiptist í íbúð 102,9 fm og bílskúr 30,9 fm, samtals 133,8 fm. Samkvæmt teikningu skiptist húsið í forstofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi, eldhús, borðstofu, stofu (en hægt er að gera fjórða herbergi þar), geymslu/þvottahús þar er einnig geymsluloft og bílskúr þar sem annar hlutinn er geymsla og þvottahús en hinn hlutinn er svefnherbergi með baðherbergi innaf og hurð út á steyptan pall.
Steyptur sólpallur ca 37 fm og grasflöt að aftan og að framanverðu er mulningur og ruslatunnuskýli.
Harðparket á gólfum nema á baðherbergjum og í bílskúr. Gólfhiti í öllum rýmum, ekki komnar stýringar. Innfelld ljós með dimmerum eru í öllu húsinu.
Frábær staðsetning í rólegum botnlanga þar sem m.a. nýr leikskóli Goðheimar er í göngufæri.
Eignin Grundarland 19 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 250-6153, birt stærð 133.8 fm. Nánar tiltekið eign merkt 01-01, ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
Nánari upplýsingar veitir: Elín Urður Hrafnberg Löggiltur fasteigna- og skipasali, í síma 6902602, tölvupóstur [email protected] eða [email protected]
NÁNARI LÝSING:
Anddyri: með harðparketi á gólfi.
Hol: með harðparketi,
Svefnherbergi#1: með skápum og harðparketi á gólfi.
Svefnherbergi#2: með harðparketi.
Eldhús/borðstofa: dökk L-laga eldhúsinnrétting með innbyggðum ísskáp og innbyggðri uppþvottavél. Helluborð í eyju sem hægt er að sitja við ásamt háf og bakaraofni í vinnuhæð. Rúmgóð borðstofa með útgengi á steyptan pall.
Stofa: með parketi á gólfi, hægt er að útbúa fjórða herbergið.
Baðherbergi#1: með ljósum flísum á gólfi, á klósettkassa og inní sturtunni. Upphengt wc, innrétting með vaski, spegill með ljósi, walk in sturta með glerskilrúmi og handklæðaofni.
Geymsla/þvottahús: geymsla en hægt er að færa þvottahúsið inn í þetta rými þar sem allar lagnir eru þar fyrir, innangengt úr íbúð inn í bílskúr og geymsluloft.
Bílskúr: búið er að útbúa gott herbergi með baðherbergi innaf í öðrum helming bílskúrs og í hinum er þvottaaðstaða ásamt geymslu. Í dag er nýtt sem auka sjónvarpshol.
Baðherbergi#2: innaf herbergi í bílskúr með walk in sturtu með glerskilrúmi, flísum á gólfi og inn í sturtunni, upphendu wc, innréttingu með vaski og spegli fyrir ofan ásamt handklæðaofni.
Bílaplan er með möl og steypt ruslatunnuskýli eru framan við húsið.
Garður er með steyptum palli og rest af garði er þökulögð.
Virkilega bjart og fallegt fjölskylduhús sem er vel staðsett á Selfossi, stutt í leikskóla, skóla, Fjölbrautaskóla Suðurlands, verslanir, sund og líkamsræktarstöð. Einnig er stutt í náttúruna með fallegum gönguleiðum.
Gimli fasteignasala leggur áherslu á traust, áreiðanleika og góða þjónustu.
Það er okkar trú að það skipti öllu máli í fasteignaviðskiptum að viðskiptavinurinn fái trausta og góða þjónustu. Við hjá Gimli höfum stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti í meira en fjóra áratugi. Hjá okkur starfa sérhæfðir og reyndir fasteignasalar sem sinna stórum sem smáum verkefnum af nákvæmni og þekkingu sem skilar árangri.
Hvar erum við?
Gimli Fasteignasala er staðsett á jarðhæð í Skipholti 35 í Reykjavík en einnig rekum við söluskrifstofu að Eyrarvegi 29. 2 hæð á Selfossi.
Við höfum opið frá 10-15 mánudaga til föstudaga. Sláðu á þráðinn eða líttu við hjá okkur í Skipholtinu næst þegar þú átt leið hjá. Við erum alltaf með heitt á könnunni. sími: 570 4800, tölvupóstur: [email protected]
Gimli gerir betur...
Heimasíða Gimli fasteignasölu
Gimli á Facebook
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila. Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 3800,- Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Teikningar sem fylgja lýsingu eignarinnar og myndum eru til viðmiðunar og ekki alltaf í samræmi við samþykktar teikningar af eigninni.
Myndir í auglýsingu eru í einkaeigu og er notkun þeirra með öllu óheimil án formlegs leyfis fasteignasala
Gimli fasteignasala leggur áherslu á traust, áreiðanleika og góða þjónustu.
Það er okkar trú að það skipti öllu máli í fasteignaviðskiptum að viðskiptavinurinn fái trausta og góða þjónustu. Við hjá Gimli höfum stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti í meira en fjóra áratugi. Hjá okkur starfa sérhæfðir og reyndir fasteignasalar sem sinna stórum sem smáum verkefnum af nákvæmni og þekkingu sem skilar árangri.
Hvar erum við?
Gimli Fasteignasala er staðsett á jarðhæð í Skipholti 35 í Reykjavík en einnig rekum við söluskrifstofu að Eyrarvegi 29. 2 hæð á Selfossi.
Við höfum opið frá 10-15 mánudaga til föstudaga. Sláðu á þráðinn eða líttu við hjá okkur í Skipholtinu næst þegar þú átt leið hjá. Við erum alltaf með heitt á könnunni.
Gimli gerir betur...