Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Borga Harðardóttir
Þyrí Guðjónsdóttir
Vista
parhús

Borgarheiði 3

810 Hveragerði

62.900.000 kr.

703.579 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2209893

Fasteignamat

54.250.000 kr.

Brunabótamat

48.850.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1974
svg
89,4 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sérinngangur

Lýsing

VALBORG fasteignasala kynnir í einkasölu parhúsið Borgarheiði 3V, 810 Hveragerði.
Eignin er samtals 89,4 m² að stærð samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands.
Eignin er 89,4 m² og telur eldhús, tvö svefnherbergi, stofu/borðstofu, baðherbergi, þvottahús og geymslu.
Lóð er snyrtilega frágengin, skjólgóð og aflokuð timburverönd fyrir aftan hús og garður aflokaður með grindverki.
Eignin er á skjólgóðum stað, stutt í alla helstu þjónustu bæjarins, verslanir sem og leik- og grunnskóla.

Nánari upplýsingar veita:
Gunnar Biering Agnarsson, löggiltur fasteignasali, í síma 823-3300, tölvupóstur [email protected]
Elínborg María Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 861-6866, tölvupóstur [email protected].


Sjá staðsetningu hér:

Lýsing eignar:
Anddyri er á norður hlið hússins. Flísar á gólfi, rúmgóður skápur.
Forstofuherbergi er bjart með norðurvísandi glugga. Skápalaust.
Hjónaherbergi er með skápaplássi og glugga til austurs.
Baðherbergi innrétting með handlaug, upphengt wc og hornbaðkar. Flísalagt í hólf og gólf.
Þvottahús/geymsla, gert ráð fyrir þvottavél
Eldhús með innréttingu. Helluborð, vifta og bakarofn. Gert ráð fyrir uppþvottavél og ísskáp. Flísar á gólfi og milli skápa. 
Borðstofa og stofa eru saman í opnu rými, miklir gluggar til suðurs og útgengi út á sólríkan pall sem girtur er af með skjólveggjum
Gólfhiti er í eigninni.

Gólfefni:
Flísar á öllum rýmum nema svefnherbergjum en þar er parket.

Byggingarár hússins er skráð 1974 en það var endurnýjað mikið á árunum 2010-2015
Þá var húsið meðal annars klætt að utan, járn og pappi endurnýjaður, eldhús og baðherbergi endurnýjað, ásamt því að lagnir voru yfirfarðar og endurnýjaðar að hluta. Einnig voru hurðar endunýjaðar á sama tímabili.
Á síðustu árum var timburverönd, skjólgirðing og girðing reist fyrir aftan eignina.

Nánari upplýsingar veita:
Gunnar Biering Agnarsson, löggiltur fasteignasali, í síma 823-3300, tölvupóstur [email protected].
Elínborg María Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 861-6866, tölvupóstur [email protected].

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valborg ehf. fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Valborg fasteignasala

Valborg fasteignasala

Nóatún 17, 105 Reykjavík
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
10. nóv. 2015
14.600.000 kr.
21.200.000 kr.
89.4 m²
237.136 kr.
5. feb. 2010
14.850.000 kr.
4.475.000 kr.
76 m²
58.882 kr.
11. sep. 2009
15.000.000 kr.
1.135.000 kr.
76 m²
14.934 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Valborg fasteignasala

Valborg fasteignasala

Nóatún 17, 105 Reykjavík
phone