Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Óskar Rúnar Harðarson
Jason Guðmundsson
Þröstur Þórhallsson
Ólafur Finnbogason
Kjartan Ísak Guðmundsson
Gústaf Adolf Björnsson
Viðar Böðvarsson
Rakel Viðarsdóttir
Ragnheiður Pétursdóttir
Böðvar Þ. Eggertsson
Vista
fjölbýlishús

Hraunbær 120 (101)

110 Reykjavík

76.500.000 kr.

671.053 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2045060

Fasteignamat

76.050.000 kr.

Brunabótamat

61.150.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1968
svg
114 m²
svg
5 herb.
svg
1 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Bílastæði

Lýsing

Miklaborg kynnir: Vel skipulögð og mikið endurnýjuð 5 herbergja íbúð á 1. hæð á einum besta stað í Árbæjarhverfi. Öll helsta þjónusta er í göngufæri hvort sem um ræðir heilsugæslu, skóla, tómstundir, íþróttir eða matvöruverslun. Innan íbúðar eru: 4 svefnherbergi, eldhús, baðherbergi, þvottahús og sérgeymsla í sameign. Sbr. Skráningu HMS þá er íbúðarrýmið 112,2 fm og auka geymsla 1,8 fm (fyrir utan geymsluna sem er innan íbúðar). Eldhús og baðherbergi voru endurnýjuð 2014. Sér merkt bílastæði er á lóðinni.

Nánari upplýsingar veitir Friðjón Örn Magnússon, löggiltur fasteignasali í síma 692-2704 eða [email protected]

Nánari lýsing:

Forstofa: Rúmgóðir fataskápar. Parket á gólfi.

Stofa / Borðstofa: Frá forstofu er gengið inn í stofu og borðstofu. Parket á gólfi.

Eldhús: Gengið til vinstri í átt að eldhúsi. Góð innrétting með miklu skápaplássi. Allt eldhúsið var endurnýjað árið 2014. Parket á gólfi.

Svefnherbergi: Fjögur svefnherbergi. Hjónaherbergi er inn af borðstofu. Útgengt er á svalir frá hjónaherbergi sem snýr í átt að inngarði. Góðir fataskápar. Barnaherbergin eru í hinum enda íbúðar. Í tveimur herbergjum eru fataskápar. Parket á gólfi.

Baðherbergi: Baðinnrétting með skolvaski og spegli fyrir ofan vask. Upphengt Wc og sturta. Dökkar flísar á gólfi en hvítar á veggjum.

Baðherbergið var allt endurnýjað árið 2014.

Þvottahús: Er við hlið baðherbergis og er góð innrétting fyrir þvottavél og þurrkara, góðir fataskápar, gluggi til loftunar og dökkar flísar á gólfi.

Sameign: Á jarðhæð er snyrtileg sameign. Geymslurými og stórt sameiginlegt þvottahús. Sérgeymsla íbúðar er staðsett undir stiga til móts við íbúðina.

Sameiginleg lóð er sérlega barnvæn og vel við haldin með góðum leiktækjum.Það eru 87 merkt einkastæði íbúða og 25 sameiginleg gestastæði á bílastæðinu.Hleðslustöðvar tenglar lagðir fyrir 96 stæði. Um er að ræða sérlega góða og vil skipulagða eign í grónu barnvænu hverfi þar sem öll þjónusta er í göngufæri, þ.e. Leik-og grunnskóli, heilsugæsla, matvara, íþrótta-og tómstundaiðkun, sundlaug, líkamsræktarstöð World Class og svo er útvitstarperlan í Elliðaárdal.

Endurbætur við Hraunbæ 120 síðustu ár og innan íbúðar:

2014 - Nýjar skólplagnir 2014.

2014 - Dregið nýtt rafmagn innan íbúðar.

2014 - Baðherbergi og Eldhús endurnýjuð ásamt parket á íbúðinni.

2015 - Skipt um öll gler og opnanleg fög.

2020 - Þak endurnýjað Hraunbær 116 - 120.

2021 - Raflagnir og tenglar fyrir þvottavél og þurrkara settar fyrir hverja íbúð fyrir sig í sameignlegu þvottahúsi. Einnig er til staðar tengill fyrir sameiginlega þvottavél.

2021 - Stigagangur málaður og ljós endurnýjuð í sameign.

2022 - Settir upp myndavéladyrasímar í allar íbúðir.

2023 - Gluggar og útveggur við Hraunbæ málaðir.

2023 (Hraunbær 116-120).2024 - Gluggar á suðurhlið málaðir (Hraunbær 120).

2024 - Nýr þrýsti jafnari og heitavatnsgrind .

Nánari upplýsingar veitir Friðjón Örn Magnússon, löggiltur fasteignasali í síma 692-2704 eða [email protected]

Miklaborg fasteignasala

Miklaborg fasteignasala

Lágmúli 4, 108 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
17. mar. 2014
23.550.000 kr.
24.900.000 kr.
114 m²
218.421 kr.
21. okt. 2010
22.000.000 kr.
20.000.000 kr.
114 m²
175.439 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Miklaborg fasteignasala

Miklaborg fasteignasala

Lágmúli 4, 108 Reykjavík