Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Hafdís Rafnsdóttir
Dórothea E. Jóhannsdóttir
Sigurður Gunnlaugsson
Jón Gunnar Gíslason
Hafliði Halldórsson
Aðalsteinn Bjarnason
Margrét Rós Einarsdóttir
Guðný Ösp Ragnarsdóttir
Elka Guðmundsdóttir
Vista
fjölbýlishús

Bríetartún 14

105 Reykjavík

68.900.000 kr.

842.298 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2009638

Fasteignamat

66.050.000 kr.

Brunabótamat

44.500.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1944
svg
81,8 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
1 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur
Opið hús: 7. apríl 2026 kl. 17:45 til 18:15

Opið hús: Bríetartún 14, 105 Reykjavík, Íbúð merkt: 302. Eignin verður sýnd þriðjudaginn 7. apríl 2026 milli kl. 17:45 og kl. 18:15. *** Verið velkomin. *** Ragnar S: 844-6516 ***

Lýsing

Ragnar Guðmundsson löggiltur fasteignasali hjá TORG fasteignasölu kynnir: Mjög rúmgóð og vel skipulögð 3ja herbergja íbúð á þriðjuhæð með suðursvölum í fjölbýlishúsi að Bríetartúni 14 í Reykjavík. Eignin skiptist í forstofu/hol, 1-2 rúmgóð svefnherbergi, uppgert baðherbergi, eldhús og stórar stofur. Auðvelt er að hagnýta eina af stofunum sem svefnherbergi. Frá stofum er útgengt á svalir sem snúa til suðurs með útsýni í sameiginlegan garð og miðborgina. Þvotta- og þurrkherbergi er í kjallara eignar ásamt hjóla- og vagnageymslu. Allar nánari upplýsingar og bókun skoðunar veitir Ragnar fasteignasali í S: 844-6516 eða [email protected] 

"Geymsla í kjallara sem er 3,7 m að stærð tilheyrir íbúð. Geymslur í kjallara eru ekki tilgreindar í gildandi eignaskiptayfirýsingu fyrir húsið og eru því ekki hluti af birtu flatarmáli í fasteignaskrá HMS."
-Íbúðin sjálf er skráð 78,1 fm. Að auki fylgir íbúðinni geymsla sem virðist EKKI vera inni í birtri fermetratölu eignarinnar. Stærð geymslunnar er ca 3,7 fm. Því virðist eignin vera alls 81,8 fm.

Að sögn eigenda hefur eignin fengið mikið viðhald á síðustu árum og ná nefna;
- 2020 - Loftræsting/stokkur úr baðherbergjum hreinsaður.
- 2021 - Nýir gluggar í sameign og mörgum íbúðum.
- 2021 - Múrviðgerðir og inndælingar.
- 2022 - Hellulagt að bakhurð og forsteyptur kantsteinn fyrir sorptunnur.
- 2023 - Nýtt þak og rennur.
- 2025 - 2026 -  Múrviðgerðir og húsið málað. - Yfirstandandi.
- 2026 - Endurnýjað í rafmagnstöflu. Öryggjabox við helluborð og bakarofn.

Nánari lýsing:
Forstofa/anddyri: Komið er inn á rúmgóða forstofu/hol sem sameinar flest rými íbúðarinnar. Á gólfum er
hvíttað parket sem flæðir yfir flest rými hæðarinnar að undanskildu eldhúsi og baðherbergi.
Eldhús: Hvít retro innrétting með endurnýjuðum bakaraofni, helluborði og harðviðar borðplötu. Flísar á gólfi og hvítar flísar á hluta veggja.
Svefnherbergi: Rúmgott herbergi með háum fimmföldum fataskáp og parketi á gólfi.
Stofa/borðstofa: Bæði stofan og borðstofan eru í stórum og björtum rýmum með parketi á gólfi. Tvennar sjarmerandi hurðir eru út á suðursvalir sem snúa út í sameiginlegan garð með fallegu útsýni yfir miðborgina. Auðvelt væri að búa til eitt til tvö auka herbergi í stofu með léttum vegg.
Baðherbergi: Baðherbergið er mikið endurnýjað. Flísar á gólfi og hluta veggja, útbúið snotri hvítri innréttingu með handlaug og neðri skápum, speglaskápi, upphengdu salerni, handklæðaofni og flísalagðri sturtu.
Sérgeymsla/þvottaherbergi: Á jarðhæð sameignar er geymsla ásamt sameiginlegu þvottaherbergi.
Garður/lóð: Á bak við húsið er stór sameiginlegur garður. 

Um er að ræða fallega og vel skipulagða hæð á mjög vinsælum stað í miðborg Reykjavíkur þar sem  góðar samgönguæðar tengja miðbæinn við alla staði borgarinnar og stutt er í alla helstu þjónustu. Einnig er göngufæri í leik- og grunnskóla. Allar nánari upplýsingar og bókun skoðunar veitir Ragnar fasteignasali í S: 844-6516 eða [email protected] 

Fáðu frítt söluverðmat fyrir eignina þína hér.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.  
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Gjaldskrá birt með fyrirvara.

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma
í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags.
Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir
og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Fasteignasalan TORG

Fasteignasalan TORG

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
9. okt. 2019
36.400.000 kr.
38.000.000 kr.
78.1 m²
486.556 kr.
12. mar. 2012
16.000.000 kr.
18.300.000 kr.
78.1 m²
234.315 kr.
10. jan. 2007
14.510.000 kr.
16.350.000 kr.
78.1 m²
209.347 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Fasteignasalan TORG

Fasteignasalan TORG

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
phone