Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Úlfar Þór Davíðsson
Ingimar Ingimarsson
Stefán Jóhann Ólafsson
Brandur Gunnarsson
Davíð Ólafsson
Gunnlaugur Þráinsson
Böðvar Sigurbjörnsson
Börkur Hrafnsson
Einar Pálsson
María Mjöll Guðmundsdóttir
Victor Levi Ricciardi Ferrua
Reynir Erlingsson
Vista
fjölbýlishús

Njálsgata 104

105 Reykjavík

68.500.000 kr.

894.256 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2010786

Fasteignamat

67.950.000 kr.

Brunabótamat

45.700.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1936
svg
76,6 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
1 svefnh.
svg
Sameiginl. inngangur
Opið hús: 8. apríl 2026 kl. 17:00 til 17:30

Opið hús: Njálsgata 104, 105 Reykjavík, Íbúð merkt: 01 01 01. Eignin verður sýnd miðvikudaginn 8. apríl 2026 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.

Lýsing


Borg fasteignasala Björt, vel skipulögð og mikið endurnýjuð 3ja herbergja íbúð við Njálsgötu 104, 105 Reykjavík.
Eignin er skráð 74,0 fm að stærð, auk 2,6 fm sérgeymslu, samtals 76,6 fm. Um er að ræða fallega og sjarmerandi íbúð á eftirsóttum stað í miðborginni, þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, verslanir, veitingastaði og mannlíf borgarinnar.


Íbúðin var mendurnýjuð að hluta og hönnuð af þáverandi eiganda árið 2018. Þá voru meðal annars endurnýjuð gólfefni, eldhús og baðherbergi, skipt um innréttingar og vatnslagnir í eldhúsi og baði, gler í stofu og svefnherbergi endurnýjað og raflagnir í eldhúsi yfirfarnar. Þá voru ofnar í íbúðinni þrýstijafnaðir og pólíhúðaðir í dökkum fjólubláum lit sem gefur eigninni flott og stílhreint yfirbragð.
Sameign hússins var tekin í gegn árið 2020, en þá var meðal annars sett upp ný rafmagnstafla, ný teppi lögð á stigagang og nýjar flísar settar á neðri gang við sameiginlegt þvottahús og útgengi út í garð. Skólplagnir út í götu voru jafnframt endurnýjaðar fyrir um tólf árum.

Nánari lýsing:
Forstofa er með fatarými. Frá forstofu tekur við bjart og opið alrými með eldhúsi, borðstofu og stofu. Eldhúsið er með hvítum háglansinnréttingum, hvítum borðplötum og eyju með gashelluborði. Stofa og borðstofa eru rúmgóðar og bjartar með útgengi út á suðursvalir. Hvítt gólfefni er á alrými.
Svefnherbergið er rúmgott og þaðan er innangengt inn á baðrými. Á svefnherbergi er dökkt gólfefni sem setur skemmtilegan svip á rýmið. Baðherbergið er sérlega áhugavert í uppsetningu og skiptist í tvö rými; annars vegar sturturými með hita í gólfi, fallegum flísum og glervegg sem hleypir birtu fallega um rýmið, og hins vegar salerni sem gengið er inn í frá fatarými/anddyri. Innréttingar á baði eru svartar og háglansandi, ásamt upphengdu salerni.
Í kjallara er sameiginlegt þvottahús, og eigninni fylgir sérgeymsla í risi ásamt hlutdeild í óskiptu rými.

Staðsetningin er einstaklega góð í hjarta Reykjavíkur, þar sem borgarlífið er allt við hendina og áframhaldandi uppbygging á svæðinu gerir staðinn enn áhugaverðari til framtíðar.

Nánari upplýsingar veita:
Úlfar Þór Davíðsson í síma 788-9030 og netfang [email protected] 
Börkur Hrafnsson í síma 892-4944 og netfang [email protected]




Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.
Vill BORG fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8/0,4 % af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl.
3. Lántökugjald lánastofnunar 
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði




 

img
Úlfar Þór Davíðsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Borg Fasteignasala
Síðumúla 23, 108 Reykjavík
Borg Fasteignasala

Borg Fasteignasala

Síðumúla 23, 108 Reykjavík
phone
img

Úlfar Þór Davíðsson

Síðumúla 23, 108 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
12. des. 2022
43.950.000 kr.
61.000.000 kr.
76.6 m²
796.345 kr.
25. nóv. 2020
41.100.000 kr.
48.750.000 kr.
76.6 m²
636.423 kr.
16. júl. 2018
35.150.000 kr.
33.000.000 kr.
76.6 m²
430.809 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Borg Fasteignasala

Borg Fasteignasala

Síðumúla 23, 108 Reykjavík
phone

Úlfar Þór Davíðsson

Síðumúla 23, 108 Reykjavík