Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 2004
118 m²
3 herb.
1 baðherb.
2 svefnh.
Þvottahús
Sameiginl. inngangur
Bílastæði
Lyfta
Opið hús: 7. apríl 2026
kl. 17:30
til 18:00
Opið hús: Strandvegur 9, 210 Garðabær, Íbúð merkt: 01 02 03. Eignin verður sýnd þriðjudaginn 7. apríl 2026 milli kl. 17:30 og kl. 18:00.
Lýsing
Eignamiðlun kynnir:
Mjög falleg 118 fm 3ja-4ra herbergja íbúð á 2. hæð í litlu fjölbýlishúsi við Strandveg í Sjálandi í Garðabæ. Íbúðin skiptist í forstofu, stofu, eldhús, 2-3 herbergi, baðherbergi og þvottahús. Sér geymsla er í kjallara. Glæsilegt sjávarútsýni er úr íbúðinni. Stór timburverönd sem snýr til suðurs og austur. Íbúðin er að hluta til á jarðhæð. Íbúðinni fylgir stæði í bílageymslu.NÁNARI UPPL. VEITIR: Magnea S. Sverrisdóttir lg. fasteignasali s. 861 8511, [email protected]
Nánari lýsing.
Forstofa: Komið er inn í flísalagða forstofu með skápum.
Stofa og eldhús: Samliggjandi stofa og eldhús. Mjög rúmgott og bjart rými. Falleg hvít innrétting er í eldhúsi. Steinn á vinnuborðum. Ofn og háfur úr stáli. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél. Gólf er parketlagt. Gengið er út á verönd úr stofu. Stór timburverönd sem snýr til suðurs og austurs og nær meðfram íbúðinni. Glæsilegt sjávarútsýni.
Herbergi I: Parketlagt hjónaherbergi með skápum.
Herbergi II: Parketlagt herbergi með skápum.
Herbergi III: Herbergið er opið inn í stofu. Gólf er parketlagt. Gengið er út á verönd úr herberginu.
Baðherbergi: Flísalagt baðherbergi með sturtu. Innrétting með borðplötu úr steini.
Þvottahús: Flísalagt þvottahús er inn af forstofu.
Geymsla: Sér geymsla er í kjallara.
Mjög falleg íbúð með sjávarútsýni á eftirsóttum stað í Sjálandi í Garðabæ. Örstutt í leikskóla og skóla. Öll helsta þjónusta í næsta nágrenni. Fallegt útivistarsvæði í hverfinu.
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
7. sep. 2007
28.200.000 kr.
40.500.000 kr.
118 m²
343.220 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026